157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:35]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég taldi mig vera alveg skýra með það í ræðu minni að ég vilji sjá þetta lækka og var að vonast til að það yrði lægra en 2.000 kr. Ég er algerlega hreinskilin með það en ég átta mig líka á þeirri stöðu sem ríkisstjórnin er í varðandi það litla svigrúm sem við höfum. Ég átta mig líka á því og ég er bara raunsæ manneskja hvað það varðar.

En mig langar að eyða síðustu mínútunni minni í að ræða aðeins afnám hringsiglinganna og tollfrelsi af því að við höfum eiginlega ekkert rætt það. Eins og ég skynja þetta þá hefur það enn verri áhrif á litlu hafnir landsins, það er algjört hrun í bókunum á Patreksfirði, það er algjört hrun í Grundarfirði og í minni höfnum, á meðan stærri hafnirnar; Reykjavík, Ísafjörður og Akureyri, ná að halda sínu, þannig að ég myndi vilja reyna að dýpka aðeins umræðuna hjá okkur í nefndinni. Eru það meira leiðangursskipin, afnám tollfrelsis sem hefur þau áhrif eða er það innviðagjaldið? Mér finnst þessi umræða hafa sýnt það að við þurfum aðeins að geta talað um þetta af meiri þekkingu og meiri skilningi á atvinnugreininni, þannig að ég held að við ættum kannski að beita okkur fyrir því.