breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Það kemur kannski hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur ekki á óvart að ég skuli koma hér að ræða nákvæmlega sama þáttinn og ég var að ræða hér áðan við hæstv. fjármálaráðherra og við ræddum í sumar. Þá kemur kannski þessi punktur sem ég held að sé gríðarlega mikilvægur og hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir kom aðeins inn á, að það vantar allar hagrænar rannsóknir á ferðaþjónustu á Íslandi. Það eru 20 ár síðan sá sem hér stendur skrifaði lokaverkefni sitt í viðskiptafræði um hagræna þætti ferðaþjónustu og það hefur bara fátt gerst síðan. Það er ekki mikið efni sem kemur út um þessa þætti. Ég tek undir þau sjónarmið hv. þingmanns að í fyrra, varðandi tollfrelsi fyrir leiðangursskipin, þessi skip sem eru að fara þessar vikusiglingar í kringum landið á köld svæði; á Djúpavog, Þórshöfn er að detta inn núna, Raufarhöfn, Patreksfjörður — það er bara fullt af höfnum þar sem þetta er gríðarlega stórt og mikilvægt atriði og hefur raunverulega haft gríðarleg áhrif á hafnarsjóði viðkomandi sveitarfélaga. Ég hvet hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur til að taka nákvæmlega þetta mál upp sem snýr að tollleysinu sem sá sem hér stendur barðist mjög fyrir hérna í fyrrahaust að yrði framlengt um ár. Nú er hv. þingmaður formaður efnahags- og viðskiptanefndar og hefur þar með góð tök á að fást við þetta mál.
Það er líka mjög mikilvægt varðandi innviðagjald að það sé fyrirsjáanleiki, sem hv. þingmaður kemur inn á, að hann sé til staðar, að við förum að hugsa það af einhverju viti hvernig við förum í hlutina. Hvernig má það vera alltaf hér í þinginu að það sé verið að samþykkja bandorminn, fjárlög yfirleitt í lok desember og það á að taka gildi áramótin eftir, kannski tíu dögum seinna? Það er bara ekkert samfélag sem gerir þetta með þessum hætti. Við þurfum að vera með miklu meiri fyrirsjáanleika. Við þurfum helst að horfa ár, tvö, þrjú, fram í tímann þannig að atvinnulífið geti aðlagað sig að þeim breytingum. (Forseti hringir.) Við tökum meira í seinna andsvari.