157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:39]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Það var svo sem ekki bein spurning í andsvari hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar en ég vil þakka honum fyrir að taka þátt í þessari umræðu. Ég held að hún sé mikilvæg. Hann kom þarna inn á punkt sem mér finnst skipta svo miklu máli. Það er punktur um ferðaþjónustu á landsbyggðinni og þessar litlu hafnir sem eiga svo mikið undir að þessi móttaka skemmtiferðaskipa gangi vel af því að þegar hafnir landsins eru farnar að taka á móti skemmtiferðaskipum þá byggist undir aðra ferðaþjónustu sem væri ekki grundvöllur fyrir ef þessi skip væru ekki að koma. Þá myndast grundvöllur fyrir að bjóða upp á ýmiss konar afþreyingu fyrir ferðamenn. Það myndast líka tekjuflæði fyrir aðra þjónustu. Við reyndum að halda mjög vel utan um þetta hjá Ísafjarðarbæ og reyndum að greina þessi hagrænu áhrif og við spurðum bara ferðamennina: Hvað eru þið að eyða? Hvað eruð þið að eyða miklu þegar þið stoppið hér á Ísafirði? Það kom okkur á óvart hvað það var mikið. Bara garnbúðin á Ísafirði var á floti af því að ferðamenn skemmtiferðaskipa keyptu þar garn. Maður hefði ekki trúað því. Og það eru gefnar út viðvaranir í búðunum þegar skemmtiferðaskip koma. Þetta er svo mikið bensín inn í alla innviði á minni stöðum sem við gætum ekki fengið öðruvísi, þetta hefur svo mikil áhrif. Þess vegna, þegar við erum að taka svona stórar ákvarðanir sem snerta atvinnugreinar, þá verðum við að skilja hvaða afleiðingar það hefur. Sú umræða sem ég er að kalla eftir er að við áttum okkur á þessum hagrænu áhrifum þegar við erum að taka svona ákvarðanir.