157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:41]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Hvatningarorðin hafa komið fram varðandi þann sem hér stendur, þingmann Norðausturkjördæmis. Hv. þingmaður er þingmaður Norðvesturkjördæmis. Það eru væntanlega þessi tvö landsbyggðarkjördæmi þar sem þetta hefur langmest áhrif á landsvísu, þ.e. þessi svæði, sérstaklega á þessum köldu svæðum skiptir þetta gríðarlegu máli. Ég get nefnt dæmi: Djúpivogur. Þar hefur veltan í samfélaginu verið um 200 milljónir á ári. Þrjú fyrirtæki verða til í kringum þetta. Þetta hefur gríðarleg áhrif á hafnarsjóðinn og er stór hluti af tekjum hafnarsjóðs þannig að við erum með þessi dæmi bara vítt og breitt. Það er hægt að taka allan hringinn þar sem þetta hefur mikil áhrif eins og í Hrísey, Grímsey. Og svo nefndi ég nokkur dæmi hér áðan.

Við áttum þessi orðaskipti í sumar, ég og hv. þingmaður, um þessi atriði, um þessi innviðagjöld, tollfrelsi og annað, og nú hefur hv. þingmaður tækifæri sem þingmaður Norðvesturkjördæmis, af Vestfjörðum, til að taka efnislega góða umræðu um mikilvægi þess fyrir svæðin að takast á við þetta mál. Við þurfum að nota tækifærið. En auðvitað er það þannig að ríkið fer oft í hluti — ég veit ekki til þess að ég hafi séð neina alvörurannsókn á Íslandi tengt akkúrat þessum geira um nákvæmlega þetta í einhverju samhengi hluta, hvað þetta þýðir fyrir samfélög. Við vitum það að ferðaþjónustan er það sem hefur byggt stöðugleikann upp í efnahagslífinu síðustu tíu, tólf árin og er alger undirstaða fyrir svo margt. En þetta er líka sú öflugasta byggðastefna sem hefur orðið í þessu landi á undanförnum árum og það þarf að hafa það í huga þegar við erum að skoða þetta. Hér er um gríðarlega mikið inngrip að ræða sem við sjáum í þessu máli sem snýr bæði að tollfrelsinu og síðan þessu innviðagjaldi vegna þess að ef við reiknum þetta inn í svona ferð þá förum við kannski í ferð sem kostar 300.000–400.000 kr. og þá fer fólk kannski að átta sig á því að þetta er gríðarlegt inngrip ofan á þá skatta sem voru fyrir með þessum nýju sköttum.