157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:43]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég bara tek undir þessa áskorun frá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni, ég mun að sjálfsögðu taka þetta upp í efnahags- og viðskiptanefnd og ég geri auðvitað ráð fyrir því að við munum fá ýmsar umsagnir um málið. En þetta skiptir máli fyrir þessar minni hafnir. Þegar ég var bæjarstjóri hjá Ísafjarðarbæ þá reyndum við að kanna það sem ég nefndi áðan, þ.e. umfangið á skemmtiferðaskipunum og miðað við fjölda farþega þá reiknaðist okkar til að þeir væru að skilja eftir sig um 3,3 milljarða á hverju einasta ári í nærsamfélagið. Höfnin fékk einhverjar 800 milljónir eða hvað það var og svo var hitt, bara í allri ferðaþjónustu sem er í kring, hjá öllum þeim sem eru að selja ferðir; gönguferðir, kajakferðir, bátsferðir og ég gæti haldið áfram. Þessir farþegar fara auðvitað í bakaríið líka og kaupa sér kaffi og hvaðeina. Það var alltaf mýta um að þessi farþegar eyddu engu en þessi litla rannsókn sem við gerðum leiddi í ljós að það er svo sannarlega ekki svo, þeir eyða peningum bara alveg eins og aðrir ferðamenn.