breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því í andsvari hæstv. fjármálaráðherra eftir framsögu hans að hann nefndi að skattahækkun væri í raun aðhaldsaðgerð, væri hluti af aðhaldinu til þess m.a. að stemma stigu við, ef ég skildi hann rétt, verðbólgu og þess háttar. Það að hækka skatta, legg ég út af því, er þá að tryggja að almenningur hafi úr minna að spila en hann hefði ella, að almenningur haldi minna eftir af sínu sjálfsaflafé en það á, að mínu mati, rétt til. Þannig væri skattahækkun aðhaldsaðgerð. Frá mínum bæjardyrum séð eru skattar ill nauðsyn. Skattar þjóna einum tilgangi og aðeins einum og það er að afla ríkissjóði tekna til að standa undir þeirri þjónustu sem við komum okkur saman um að þurfi að veita eða verði veitt. Svo getum við hér inni auðvitað haft mismunandi skoðanir á því hvaða þjónusta það er, en að endingu komum við okkur saman um einhverja tiltekna þjónustu sem þarf að veita, það þarf að borga hana og þess vegna eru skattar. Skattar eru ekki aðhaldsaðgerð að mínu mati. Skattar eru ekki tól í jafnréttisbaráttu, sem er annað dæmi sem heyrist stundum fleygt. Skattar eru ekki heldur tól eða tæki í neyslustýringu almennings. Skattar hafa undanfarin ár verið nýttir til að ýta fólki yfir í eina neysluvöru umfram aðra og öll þekkjum við umræðuna um einhver jafnréttissjónarmið sem sköttum er ætlað að ýta undir.
Eitt af því í þessu samhengi er einmitt tillaga sem gerð er í þessu frumvarpi um að fella niður samnýtingu skattþrepa samskattaðra aðila, þ.e. hjóna. Það er gert hér m.a. með vísan til jafnréttissjónarmiða. Þetta hefur svolítið verið rætt hérna í ræðum og andsvörum á undan mér en mér þykir rétt að ég reifi aðeins örfá sjónarmið í ljósi þess að ég lagði fram breytingartillögu við fjármálaáætlun hæstv. fjármálaráðherra síðasta vor sem laut einmitt að þessu sérstaklega.
Það sem ég geri í fyrsta lagi athugasemdir við er að hér er gert ráð fyrir því að samnýting skattþrepa sé einhvers konar frávik frá einstaklingsskattlagningunni sem grunngerð tekjuskattskerfisins. Ég vil hins vegar geta þess að í þessu frumvarpi er ekki flaggað sömu sjónarmiðum og var flaggað í fjármálaáætluninni um þetta mál þar sem því var mjög mikið haldið til haga að að það þyrfti að loka glufum, það þyrfti að bæta skattskilin og fækka undanþágum. Eftir stendur hins vegar það sjónarmið frumvarpshöfunda og hæstv. fjármálaráðherra að hér sé um einhvers konar undanþágu að ræða. Ég geri athugasemdir við það og líka við það að ríkið eigi einhvern rétt á einhverjum skatttekjum manna svona almennt. Með skattheimildir verður ríkið auðvitað að fara mjög varlega alla jafna.
Það er rétt að hafa það í huga hér, sem rakið er svo sem í þessu frumvarpi en var nú ekki gert í fjármálaáætlun, að þessi regla um samsköttun hjóna er komin til vegna þess að hér var tekið upp fjölþrepa skattkerfi árið 2015. Það er svona tiltölulega nýtt fyrirbæri í sögulegu samhengi. Þegar það var gert þá áttuðu menn sig á því að þegar annað hjóna er mun tekjulægra þá er hætt við því að heildarskattbyrði hjóna verði miklu þyngri heldur en þegar um hjón er að ræða þar sem báðir einstaklingarnir eru með svipaðar tekjur. Hjón með jafnar tekjur bera þá minni skattbyrði heldur en hjón með misháar tekjur. Það er ekki sanngjarnt, einkum og sér í lagi vegna þess að við höfum litið til þess frá örófi alda hér á Íslandi og öll löggjöf ber þess merki að hjón bera sameiginlega ábyrgð þegar kemur að fjölskyldu og rekstri heimilisins. Þannig er öll löggjöf í dag þannig búin að gert er ráð fyrir þessari sameiginlegu ábyrgð hjóna. Það er kannski það sem mér hefur þótt verst við þessa aðgerð sem nú er boðuð og kostar nokkra milljarða, er skattahækkun upp á nokkra milljarða fyrir fjölskyldur og þá sem hafa nýtt sér þetta. Með þessu er ríkisstjórnin að taka sér stöðu gegn rótgrónum fjölskyldugildum. Það er ekki hægt að líta öðruvísi á þetta mál.
Þessi heimild sem var tekin upp þegar við tókum upp þetta fjölþrepa skattkerfi til að færa tekjur samskattaðs fólks á milli skattþrepa er til þess að jafna heildarskattbyrði samskattaðra aðila. Í ræðu og andsvörum hv. formanns fjárlaganefndar var mjög vísað til þess að þetta væri einhvers konar kynjamisrétti og í frumvarpinu er vísað til þess að við álagningu opinberra gjalda 2025 hafi konur notið 19% af samsköttun en karlar 81%. Með þessari framsetningu er algerlega horft fram hjá því sem ég var að nefna hér áðan, sem er að hjón, karlar og konur og einstaklingar af fleiri kynjum en það — mér þykir nú merkilegt að sjá að ríkisstjórnin lítur fram hjá því að menn telja margir að það séu fleiri kyn en konur og karlar hér — báðir aðilar bera sameiginlega ábyrgð á fjölskyldu sinni. Að tiltaka það að við samsköttun hjóna sé það annar hvor aðilinn sem njóti þeirrar samsköttunar — þau njóta þess auðvitað bæði, hjónin bæði njóta samsköttunar. Út á það gengur samsköttunin. Nái þetta fram að ganga þá er það óhjákvæmilegt að tvenn hjón, önnur hjónin með jafnar tekjur, hverjar svo sem þær eru, bera minni byrði af sköttum en hjón þar sem annar aðilinn er með mun lægri tekjur. Það getur verið af ýmsum ástæðum, tímabundnum kannski, í okkar lífi eru aðstæður fólks mismunandi milli tíma og þar fram eftir götunum.
Fyrst og fremst tel ég þetta vera aðför að hefðbundnum fjölskyldugildum og mér þykir það miður. Hvað sem mönnum kann að þykja um jafnréttisumræðuna og að þetta sé einhver aðför að konum, ég læt það liggja á milli hluta hér, hvað sem mönnum kann að þykja um þau rök þá er útilokað að þau rök vegi þyngra og fái meiri þyngd í þessu máli heldur en rök þau sem lúta að hagsmunum þeirra sem þessi heimild hefur lotið að. Þetta vildi ég segja um þetta mál og ég vænti þess að hv. fjárlaganefnd skoði þetta mál sérstaklega.
Ég vil þá víkja að öðru máli, það er af nógu að taka svo sem í þessu, en í þessari yfirferð við 1. umræðu til að koma að einhverjum punktum til fjárlaganefndar þá vil ég aðeins vekja athygli á því að hér er gert ráð fyrir breytingum á fjárheimildum Íslandsstofu, eitt dæmi sem ég hjó eftir. Hér er gert ráð fyrir því að framlög til Íslandsstofu verði ákveðin af Alþingi í fjárlögum ár hvert. Þannig hefur það nefnilega verið að Íslandsstofa, sem er sjálfseignarstofnun í eigu ríkisins og má hafa ýmsar skoðanir á því hvort rétt sé að þessi Íslandsstofa sé sjálfseignarstofnun en ekki bara einhver stofnun eða deild einhvers staðar annars staðar, hefur fengið fé af svokölluðu markaðsgjaldi sem hefur verið lagt á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds, 0,05% sem lagt er á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds. Það hefur verið kveðið á um það að tekjur Íslandsstofu hækki ávallt í takt við áætlaða aukningu innheimts tryggingagjalds þannig að Íslandsstofa hefur notið þess ef umsvifin í atvinnulífinu eru þannig að fyrirtækin í landinu borga hærra tryggingagjald. En hér er horfið frá því og lagt til að Íslandsstofa verði á fjárlögum. Hins vegar er samhliða gert ráð fyrir því að þessi 0,05%, markaðsgjaldsákvæðið, verði efnislega óbreytt flutt yfir í lög um tryggingagjald.
Ég hlýt að spyrja: Hvers vegna er ekki tryggingagjaldið lækkað sem þessu nemur? Ég hefði gjarnan viljað að hæstv. fjármálaráðherra hefði farið yfir það í sinni framsögu hvernig hann sjái fyrir sér þróunina í fjárheimildum Íslandsstofu að þessu leyti. Megum við vænta þess hér á þinginu að það komi inn beiðni um hækkaðar fjárheimildir til Íslandsstofu sem þessu nemur? Ég vek athygli á því að það hefur verið, að mér sýnist, hækkun hjá Íslandsstofu um tæpa 100 millj. kr. á ári á milli ára undanfarin ár. Íslandsstofa nýtur nú þegar tekna upp á 1,2 milljarða kr. Menn hafa stundum velt fyrir sér hvort það sé þessi mikla þörf á að auglýsa Ísland, einkum og sér í lagi þegar margir kvarta yfir ágangi ferðamanna. Ég er ekki í þeim hópi en ég tel hins vegar að 1,2 milljarðar af skattfé til markaðssetningar á Íslandi erlendis sé fullrausnarlegt. Ég hefði viljað sjá tryggingagjaldið lækkað sem þessu nemur. Atvinnulífið hefur, og það á auðvitað líka við um fyrirtæki í ferðaþjónustu, talið að tryggingagjaldið sé of hátt og það er löngu tímabært að lækka það. En hér er kannski dæmi um að þegar eitt gjald er komið einu sinni á þá virðist ekki hægt að leggja það af, jafnvel þótt það hafi verið eyrnamerkt í tiltekin verkefni, sem er nú að heyra sögunni til, og jafnvel þó að verkefnið sé fellt niður stendur gjaldið eftir sem áður.
Að lokum vil ég nefna Háskóla Íslands, sem ég átti nú reyndar orðastað við hæstv. fjármálaráðherra um. Ég tel einboðið að hv. fjárlaganefnd skoði sérstaklega þessa hækkun á skrásetningargjöldum til Háskóla Íslands sem er langtum mun minni en háskólinn sjálfur hefur metið og lagt fram rökstutt álit um að gjaldið þurfi að vera töluvert hærra, 180.000 kr. minnir mig að það hafi verið. Ég skil vel að nemendur mótmæli því en nemendur þurfa auðvitað líka að hafa það í huga að háskólinn þarf að geta veitt þá þjónustu sem menn ætlast til af honum og nemendur, sem ég held að við skrásetningu fái ókeypis netfang og ég veit ekki hvað og hvað, þurfa auðvitað að virða skólanum það til vorkunnar að þetta allt saman kostar. Eins og annars staðar þegar um er að ræða gjaldtöku, ekki skatta, það er munur á gjöldum og sköttum, þá skal við það miðað hvað það kostar að veita þessa tilteknu þjónustu. Ég hvet hv. fjárlaganefnd til að skoða þetta sérstaklega.
Hitt atriðið sem lýtur líka að gjaldtöku Háskóla Íslands er að það hefur verið kallað eftir því að Háskóli Íslands fái heimild til þess að taka gjald fyrir þá miklu vinnu, sem er umfram skrásetningu á íslenskum nýnemum, við að fara yfir þann sívaxandi fjölda umsókna sem háskólanum berst frá einstaklingum utan EES-svæðisins, sem í mörgum tilfellum eru að nýta háskólann sem inngöngu- eða aðgöngumiða að EES-svæðinu. Ég tel mjög mikilvægt að háskólinn fái tæki og tól til að bregðast við þessu og heimild með lögum til þess að innheimta gjald fyrir þetta.