157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar ágætu ræðu og hjó mjög eftir umfjöllun hennar um samsköttun sem hún fór vandlega yfir. En mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hún telji þetta vera heppilega leið að því að ná jöfnun í skattkerfinu og langar kannski að útskýra spurningu mína aðeins. Nú nefnir hv. þingmaður réttilega að þetta nái til hjóna eða sambúðarfólks en ekki sérstaklega tekið tillit til stærðareiningarinnar eða samsetningar að öðru leyti. Hvort hún telji þetta fyrirkomulag heppilegra en fyrirkomulag sem sérstaklega er þá til þess að jafna stöðu fjölskyldna gagnvart skattkerfinu, sem er ein af grundvallarhönnunarforsendum skattkerfisins, þ.e. að það hefur þann almenna tilgang að jafna ráðstöfunartekjur. Það er gert með persónuafslætti og þrepuðum skatti en auðvitað er með engu móti ljóst eða fyrir fram ákvarðað og ekki tekið tillit til þess í dag hver aldur er, hver samsetning fjölskyldunnar er eða neitt annað hvað varðar samsköttunina. Svo ég rammi spurninguna vandlega inn: Er þetta heppilegt tæki til að ná þeim markmiðum sem þingmaðurinn nefndi í sinni ræðu?