157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hreinskilið svar. Það er auðvitað svolítið sérstakt að taka hér þátt í umræðu um jöfnun við hv. þingmann sem ekki trúir á það hlutverk skattkerfisins, en svona er nú staðan. Ég hjó eftir einu í svari hv. þingmanns sem eru áhrifin á jaðarskatta. Þetta fyrirkomulag samsköttunar leiðir til þess að aðilinn sem er með tekjur í öðru skattþrepi vegna lægri tekna færist sjálfkrafa upp í efra skattþrepið, þannig að jaðarskattar hins aðilans hækka verulega, hækka upp í það hæsta sem þeir geta orðið í þessu fjölþrepaskattkerfi okkar. Myndi hv. þingmaður ekki hafa áhyggjur af vinnuletjandi áhrifum þessa á framlag til samfélagsins?