157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:06]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í þessu frumvarpi er nokkuð gert úr því að þetta sé gert til hægðarauka fyrir konur, vegna þess að konur séu undirmálsfólk. Þær hafi ekki notið þessarar samsköttunar heldur séu það bara karlar sem njóta hennar vegna þess að konur séu iðulega eða oftar heima. Ef einhver þarf að vera heima vegna veikinda barna eða aldraðra þá lendi það oft á konum og þess vegna sé mikilvægt að kippa þessu úr sambandi. Auðvitað bregður manni við að lesa þetta því að það er eins og það eigi þá að refsa konum, að það sé mjög gott að taka þetta þannig að konurnar verði enn þá verr settar. Ef staðreyndin er sú að þær séu meira heima við og með lægri tekjur þá bitnar þessi aðgerð enn fremur á konum. Hins vegar er staðreyndin sú að atvinnuþátttaka á Íslandi er ein sú mesta í heimi, ef ekki sú mesta þegar kemur að atvinnuþátttöku kvenna — sú mesta í heimi. Ég held að þessar áhyggjur hæstv. fjármálaráðherra eða vangaveltur eigi alveg erindi og það sé málefnalegt að velta þessu fyrir sér og sjálfsagt að gera það. Ég sjálf hefði ekki áhyggjur af því gagnvart venjulegu fólki vegna þess að ég þekki mitt heimafólk. Ég veit að fólk hefur áhuga á að vera á atvinnumarkaði og tölurnar sýna það. Íslendingar eru með mikla atvinnuþátttöku. Þessi spurning hins vegar, hæstv. fjármálaráðherra þyrfti að varpa henni fram þegar örorkubætur og endurhæfingarstyrkir eru hækkaðir. Þegar þeir eru hækkaðir eins og var gert núna 1. september og lengt í öllu, þá held ég að sé tilefni til að spyrja þessarar spurningar: Hvenær er komið að þolmörkum? Hvenær er það orðið vinnuletjandi og freistandi að fara á örorku og endurhæfingarstyrki fremur en að vera á atvinnumarkaði? Ég vona að við getum rætt þessa spurningu hér í vetur.