breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér áfram efnahagsmál og efnahagsstefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sem kom og skrúfaði upp allar væntingar okkar í þessu samfélagi með tæknibrellum þar sem sleggjan fór á loft og barði niður vextina og verðbólguna. En það er komið á daginn að það var bara tæknibrella, því miður. Nú hefur vaxtalækkunarferlið sem hófst í lok síðasta kjörtímabils verið fryst af ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur en þau komu í kosningabaráttuna og lofuðu að berja niður vextina, lofuðu að setja ekki hærri álögur á fólk og fyrirtæki og þau ætluðu heldur betur að spýta í í innviðamálum. Ég var bara nokkuð spenntur. Ég var tilbúinn að vinna að þessu með þeim og mun styðja þau í allri þeirra vegferð til að gera þetta. Það má ekki gleyma því að þau ætluðu líka að hagræða, laga til, fara í tiltekt. En því miður sést ekkert á þessi spil og það er miður. En ég mun ekkert hverfa frá minni stuðningsyfirlýsingu ef þau koma á rétta braut aftur.
Við höfum rætt hér í síðustu viku um fjárlögin, hvernig á að ráðstafa öllum fjármununum og hvaða tekjur eru væntanlegar. Hér erum við að ræða það frumvarp sem svona tryggir þeim þær breytingar sem þarf til þeirrar tekjuöflunar. Ég held að það sé svo langt gengið í þessari auknu tekjuöflun — sem þau kalla hagræðingu á tekjuhliðinni sem er náttúrlega ekkert annað en enn eitt nýyrði frá þessari ríkisstjórn um skattahækkanir. Þarna eru bara álögur á fjölskyldurnar og fjölskyldunni er fórnað. Ég held að allar þessar álögur muni draga úr verðmætasköpun í íslensku samfélagi, muni draga úr hvata og vilja fólks til að greiða allar þessar álögur og getu til þess, draga úr þrótti samfélagsins og muni draga úr tekjum ríkissjóðs nái þetta fram að ganga. Hér halda þau að þau séu að sækja auknar tekjur en þetta mun verða til þess að það kemur minna í kassann. Því miður er það bara þannig.
Ég fór einmitt í ræðu minni um fjárlögin yfir allar þær gjalda- og skattalækkanir sem við fórum í meðan við vorum í fjármálaráðuneytinu, Sjálfstæðisflokkurinn, síðasta áratuginn rúman, og hvernig það skilaði alltaf auknum umsvifum ríkissjóðs, auknum tekjum og tekjurnar voru langt umfram spá ár eftir ár. Eitt árið voru þær 100 milljarðar umfram spá, næsta árið 100 milljarðar, svo vorum við í um 50 milljörðum umfram spár og síðast 30. Þannig að þetta er hægt og það hefur sýnt sig. Það sem mér er mest svona brugðið við þetta er hvernig hjólað er alvarlega í grunneiningu samfélagsins, fjölskylduna, hvernig breiðu bökunum í þessu landi, millistéttinni sem er hryggjarstykkið í þessu samfélagi, er gert það erfiðara að byggja upp fjölskyldu, byggja upp heimili, koma upp öflugri, ef maður má kalla það fjölskylduauð, þannig að hægt sé að lifa áhyggjulausu fjölskyldulífi og ala upp börn. Þetta gerist fyrir millistéttina sem er nýkomin út úr háskólanámi eða öðru námi inn á vinnumarkað, eignast fyrsta barn, annað barn eða jafnvel þriðja, er að kaupa fyrsta bílinn eða er að kaupa stærri bíl út af stærri fjölskyldu, kaupa fyrstu íbúðina eða stækka við sig vegna stærri fjölskyldu og er að borga námslánin og annað slíkt á sama tíma. Þetta er fólkið sem þarf að leggja gríðarlega mikið á sig til þess að ná endum saman. Það kostar að vera í fæðingarorlofi, það kostar að stækka fjölskylduna, það kostar að mennta sig og annað slíkt.
Á sama tíma kemur þessi ríkisstjórn og segir: Við ætlum að taka samsköttun hjóna af og hvatann til að spara og lækka greiðslubyrðina og hjálpa okkur að eignast meira í húsnæðinu, lækka skuldirnar, ætlar að láta almennu séreignarsparnaðarleiðina renna út. Þetta eru bara gríðarlegar upphæðir fyrir venjulega fjölskyldu. Þá er komið með einhver skrautorð um að þetta sé jafnréttismál, það séu bara miðaldra hvítir karlar sem njóti góðs af þessu, hálaunaðir, það er nú ein ruglafsökunin, og algerlega látið eins og fjölskyldan sé ekki samvinnuverkefni sambúðarfólks. Þetta er bara oft þannig. Síðasta dæmið sem ég fékk nú bara rétt áðan sýnir að þetta hefur mikil áhrif á fjölskyldu þar sem annar aðilinn var nýbúinn að skrá sig í meira nám, klára námið sitt og þurfti þar af leiðandi að geta dregið úr vinnu. Þau fóru í heimilisbókhaldið og fyrir tilstilli samsköttunar þá gekk það upp að viðkomandi dró úr vinnu. Það gekk upp. En ef samsköttunin væri afnumin þá er fjárhagsáætlun heimilisins og forsendurnar farnar. Og hvað gerist ef annar aðilinn tekur á sig um tíma eða eftir aðstæðum í lengri tíma að vinna meira, afla meira til þess að fjölskyldueiningin virki sem best, að þau geti dreift skattbyrðinni eins og þau dreifa skattábyrgðinni líka, og vill nýta þetta? Því hefði ég viljað sjá og legg til að við höfum fulla samsköttun hjóna, ekki bara takmarkaða eins og er í dag. Fulla samsköttun hjóna. Þannig hjálpum við fjölskyldunni að aðlaga sig best. Gefum fjölskyldunni frelsi, aukið frelsi til að haga sínum málum eins og hentar henni best.
Það er svo margt í þessu. Ég var að nefna hérna dæmi um nám. Það hefur hringt í mig mjög mikið af fólki þar sem annar aðilinn er kannski að glíma við langvarandi veikindi og örorku eða tímabundin veikindi eða annað, það eru bara slíkar aðstæður, þar sem samsköttunin skiptir miklu máli upp á rekstur heimilisins. Þá er líka tekjulægri aðilinn — maður heyrði þetta nú mjög oft hér í jafnréttisbaráttunni að fjárhagslegt frelsi skipti miklu máli, hvernig væri aflað tekna til heimilisins, og fjárhagsleg staða, að fólk væri ekki svona undir í stiganum af því að það væri að skaffa minna til heimilisins. En með því að afnema samsköttunina þá ertu einmitt að setja upp þessa stöðu, minnka fjárhagslegt framlag þess sem er með lægri tekjurnar eða engar tekjur til heimilisins. Það er fjárhagslegt framlag ef samsköttunin gildir til þess að lækka skattbyrði hins. Þannig er fólk að sameinast um þetta. Það er jafnréttismál að hafa samsköttunin að fullu, algerlega.
Svona væri hægt að halda áfram með mörg, mörg dæmi hvað þetta varðar. Við þekkjum það líka með fæðingarorlofið, þetta eru sömu rök þar. Við höfum barist mikið fyrir því að foreldrarnir fái að ráðstafa fæðingarorlofinu eins og hentar fjölskyldunni best og er barninu fyrir bestu og hvernig það kemur fjárhagslega út. Það dregur líka úr áhyggjum og öðru þannig að barnið fær öruggara og betra umhverfi. Ég treysti foreldrunum best til að taka ákvörðun um þetta. En þá þurfa þeir einhvern veginn að skipta þeim tólf mánuðum á milli sín. Þar geta komið upp þær aðstæður, sérstaklega út af stöðu umönnunarmála, sérstaklega hér í Reykjavík þar sem mesti fjöldinn er og einn mesti vandinn, að foreldrar þurfa að vera lengur heima og eru tekjulægri. En nei, þá er búið að taka samsköttunina af. Þetta er svo vont fyrir þau sem síst skyldi á svo marga vegu.
Við í Sjálfstæðisflokknum munum berjast algjörlega gegn því að þessi samsköttun verði afnumin og tala fyrir því að hún verði að fullu fyrir fjölskylduna, fyrir frelsi fjölskyldunnar. Við treystum þeim best til að haga sínum málum. Það að hafa öflugar fjölskyldur sem gengur vel að reka heimili getur bara haft áhrif til frekari barneigna og annað slíkt sem við þurfum nú á að halda. Það er ekki gott að það hafi dregið úr fjölda barna per fjölskyldu þannig að það þarf nú að frekar að auka hann en með því að afnema samsköttunina erum við frekar að draga úr því.
Séreignarsparnaðurinn er hitt stóra málið. Það kerfi hefur verið við lýði núna í um áratug þar sem var búinn til innri hvati til þess að fólk nýti sér séreignarsparnaðinn sinn sem það á inni, það greiði í séreignarsjóð og þá kemur vinnuveitandi og borgar mótframlag. Það er sparnaðarhvetjandi aðgerð, séreignarsparnaður, hann er gríðarlega efnahagslega hagkvæmt tæki, að fólk ráðstafi hluta af laununum sínum beint í sparnað. Það er þannig sem við viljum hafa það. Efnahagsreikningur ríkissjóðs verður miklu sterkari. Efnahagsleg staða samfélagsins verður miklu sterkari eftir því sem skuldir heimilanna eru lægri. Þarna náðum við að sameina þetta, með því að segja að þú fáir varanlegt skattfrelsi af þeim hluta sem fer í séreignarsparnaðinn ef þú nýtir hann til að greiða niður húsnæðislánið þitt. Þá er kominn hvati fyrir fleiri að fara í séreignarsparnað og safna og nota svo hluta af honum til að borga niður húsnæðislánið. Þegar komu vaxtaskot og hærri verðbólga þá voru heimilin miklu minna skuldsett, færri fóru í greiðsluvanda og svo koll af kolli. Þetta styrkti efnahagsstöðuna í þessu erfiða ástandi. Þetta er kjarabót fyrir fjölskyldur í landinu. Þetta kemur sér best fyrir ungar millistéttarfjölskyldur sem ég hef verið að tala hér um og er gríðarlega mikilvæg leið sem við verðum að halda í og gera varanlega. Við Sjálfstæðismenn höfum svo sem alltaf talað fyrir því að gera hana varanlega en við höfum ekki fengið meiri hluta fyrir því, en ég treysti því að hún verði gerð varanleg núna, enda stóð það í kosningaáherslum flokks hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að séreignarsparnaðarleiðin yrði gerð varanleg. Ég bara vona að Viðreisn ætli að standa við sín kosningaloforð og ég ætla að hjálpa þeim í því. Þetta var líka í okkar kosningaloforðum þannig að við getum sameinast um það og munum ræða þetta.
Svo bara rétt að lokum ætla ég að fara yfir þætti sem ég næ ekki að fara ítarlega í en ætla að hafa augun á. Það kemur mér algjörlega á óvart sú pólitíska ákvörðun að hækka krónutölugjöldin meira. Það má alveg lækka gjöld. Skattstofnar eða tekjustofnar mega rýrna. Það er það sem við höfum staðið fyrir síðustu ár þegar við vorum í ríkisstjórn, að fara aldrei upp fyrir verðbólgumarkmiðið, bara 2,5%, af því að þessi gjöld koma hvað verst við lægst launuðu hópana og þá sem hafa minnst milli handanna. Hæstv. forsætisráðherra hefur meira að segja sagt það hér í þessum ræðustól að svo sé. Við ákváðum að láta þá rýrna undanfarin ár og því kemur mér á óvart að þessi ríkisstjórn hafi ekki meiri trú á þessu en svo að hún ætli að láta þetta hækka um 3,7%. Svo á gjald af umferð að hækka um 11 milljarða án þess að það fari króna til samgöngumála af því. Það er enn ein árásin á heimilin í landinu, á fjölskyldubílinn og á fjölskyldurnar sem eru að skutla og sækja og keyra til vinnu og annað slíkt.
Að lokum minni ég á stimpilgjöldin sem ég hef barist lengi fyrir að taka af og Viðreisn hefur stutt mig heils hugar í og meira að segja viljað ganga lengra og við vonandi sameinumst um það. Það er mikilvægt fyrir stöðuna á húsnæðismarkaði líka og vonandi sammælumst við um það.