breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ágætt erindi. Mig langar bara örstutt að beina vangaveltum og spurningum til hv. þingmanns sem varða kannski þann hluta ræðu hans sem hann varði minnstum tíma í, svona í ljósi þeirrar umræðu sem var búin að eiga sér stað hér fyrr í dag undir þessum dagskrárlið, um samsköttunina. Hér hafa verið nefnd dæmi í dag í umræðunni, þar á meðal af hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur — ég bara treysti mér ekki til að fara orðrétt með prósentuhlutfallið milli karls og konu sem njóta samsköttunar þannig að ég læt vera að nefna nákvæmlega prósenturnar en samkvæmt málflutningi hv. þingmanns er það yfirgnæfandi meiri hluti sem nýtist karlmönnum. Þetta finnst mér svo áhugaverð nálgun því að heimilið er auðvitað í allri eðlilegri merkingu þess samskattað og ábyrgð hjóna á skattamálum heimilisins er sameiginleg. Þess vegna er það eiginlega ofar mínum skilningi hvernig hægt er að halda því fram að annar aðili njóti meira góðs af samsköttuninni heldur en hinn. Þar skiptir nákvæmt prósentuhlutfall ekki alveg öllu máli. Þetta er einmitt gert til að jafna stöðu. Ég hefði gaman af því ef hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson, ef hann treystir sér til, getur útskýrt það fyrir mér hvernig þetta getur nýst öðrum aðilanum betur en hinum.