breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Þessi hlutföll hafa verið þannig, eins og málið hefur verið rætt, að 81% eru karlmenn og 19% konur sem njóta samsköttunar, hlutföllin koma fram þannig. En við erum að tala um: Af hverju er það bara ekki allt í lagi fyrir fjölskyldur landsins að vera með þetta kerfi? Þetta kemur inn þegar við settum þetta fjölþrepakerfi á, hærra skattþrepið, á sínum tíma. Þetta kemur inn þá. Þetta er náttúrlega ekkert annað en dæmi um forræðishyggju hvernig menn nálgast málin. Það að fella niður samsköttunina er bara forræðishyggja. Það er vinstri stjórnin sem ræður ríkjum núna, hún vill bara hafa þetta, forræðishyggju. Við eigum og gerum allt of lítið af því — við höfum rætt í þessum þingsal fyrir einhverjum árum, örfáum árum síðan, um fólksfjölgun eða fólksfækkun í hinum vestræna heimi og allt þetta. Það er meginmarkmið okkar sem hér erum að verja fjölskyldurnar. Við vitum það, m.a. út af því hvernig staða þeirra er, að fæðingartíðni hefur farið gríðarlega hratt niður. Við erum að einhverju leyti betur stödd en víða annars staðar í hinum vestræna heimi en þetta hlutfall hefur farið gríðarlega mikið niður. Við erum langt frá því að viðhalda þjóðinni í gegnum fæðingatíðni. Það er innflutningur á fólki sem hefur fyrst og fremst tryggt fjöldann í landinu. En við getum ekki alltaf treyst á innflutning á fólki og aðalatriðið er að við eigum að skapa forsendur fyrir því — og hætta forræðishyggjunni — að verja fjölskyldurnar í landinu [Kliður í þingsal.] og fjárhagslega stöðu þeirra. Það er meginatriðið, hv. þingmaður.
(Forseti (EÁs): Áður en haldið er áfram óskar forseti eftir því að fá hljóð í hliðarsölum.)