breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Mig langaði aðeins að ræða við hann frekar af því að hann eyddi töluverðum tíma í sinni ræðu í innviðagjaldið og tel ég mig vita að við séum dálítið sammála í því máli. En það var þarna orð sem hann notaði þegar hann sagði: Ég varð undir í umræðunni um innviðagjaldið, þ.e. þegar hann var í síðustu ríkisstjórn. Mig langaði svolítið að spyrja hv. þingmann út í umræðuna þá því að ég veit að það voru fjölmargir sem sendu inn umsagnir um málið og vöruðu við innviðagjaldinu. Ég geri ráð fyrir að hann hafi verið í fjárlaganefnd á þessum tíma, og hann leiðréttir mig ef það er ekki rétt, þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvernig var umræðan? Hvers vegna var ekki tekið mark á þeim fjölmörgu umsögnum sem um málið bárust? Það bárust alla vega umsóknir frá höfnunum, Cruise Iceland og fleirum. Var ekki tilefni til þess að hlusta á þessar umsagnir? Nú bara spyr ég af því að ég var ekki hluti af þessu samtali en þetta var að einhverju leyti fyrirséð og það var stórkostlega varað við því að hafa þetta svona með engum fyrirvara og þetta væri allt of bratt. Mig langar að heyra um hans bakgrunn af því að hann segist hafa orðið undir, og það getur auðvitað verið, en hverjir voru yfir ef hann varð undir?