breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Það er rétt að ég var formaður fjárlaganefndar í fyrrahaust en þetta mál var fyrst og fremst, eins og er hér, inni í efnahags- og viðskiptanefnd, það sem snýr að þessu máli sem við erum að ræða akkúrat, innviðagjöldin. Þetta var lagt fram með þessum hætti og það sem ég var að segja áðan er að það vantar mjög mikið upp á rannsóknir, sérstaklega um hagræna þætti ferðaþjónustunnar í þessu landi, um ákvarðanatöku, lagasetningu og hvernig við förum með þessi mál varðandi tekjur og gjöld ríkisins. Ég er mikill áhugamaður um hagræna þætti í ferðaþjónustu og lokaverkefni mitt í viðskiptafræði í háskóla var um hagræna þætti í ferðaþjónustu, fyrir 20 árum. Það hafði enginn áhuga á þessu þá. Hagstofan vann fyrir mig gögn, Seðlabankinn, og mér fannst þetta bara áhugaverð pæling af því að enginn var að pæla í þessu. Þetta hefur ekki náð allt of langt almennt í umræðunni enn þá, rúmum 20 árum seinna, þ.e. að átta sig á áhrifum ferðaþjónustunnar í þessu landi. Á köldum svæðum — þetta er öflugasta byggðastefnan sem hefur komið fram í þessu landi, uppbygging íslenskrar ferðaþjónustu. Það er ekkert sem jafnast á við þau áhrif sem þetta hefur haft á landið vítt og breitt varðandi þjónustu og annað. Þá er ég að tala um að byggja upp þjónustu fyrir landsmenn úti á landi. Við þekkjum það á þeim stöðum sem hafa byggst upp hvað þetta hefur haft gríðarlega mikið að segja.
Hitt varðaði það að lenda undir. Þetta m.a. var ég að reyna að ræða í nefndum þingsins í febrúar, mars, að vera ekki að stimpla mál, vera með eftirlitshlutverk, hafa sjálfstæðar skoðanir um mál, setja sig inn í mál, velta þeim fyrir sér. Það er bara þannig að maður er ekki einn og ræður öllu sem maður vill ráða um öll mál. Það skiptir gríðarlegu máli að virða eftirlitsskyldu (Forseti hringir.) sem þingmaður. Það er það sem ég á við. Ég ætlast ekki til að vinna alla slagi í pólitík.