breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur kærlega fyrir þessa spurningu. Þetta voru tvö mál og þannig tók sá sem hér stendur efnislega á þeim. Það tókst að lengja tollfrelsið, þá baráttu, um eitt ár en það tókst ekki með innviðagjöldin. Ég tek undir það að fólk, hv. þingmenn og bara allir þurfi að setja sig svolítið inn í það þegar við erum að ræða þessi mál. Mig grunar að þessu hafi verið grautað svolítið saman vegna þess að það þarf að setja sig inn í forsendurnar. Ég tek undir, og ég kom kannski inn á það áðan í andsvörum og í ræðunni, ég man það ekki, þetta með leiðangursskipin og tollfrelsið. Það var a.m.k. ljóst í mínum huga og þannig barðist ég fyrir því að þar erum við komin í grunninn á þessum köldustu og viðkvæmustu svæðum í ferðaþjónustunni, þ.e. áhrifin á leiðangursskipin út af því. En það tókst þó að lengja um eitt ár þannig að þar var maður yfir. Hv. þingmenn verða bara að tala fyrir sannfæringu sinni í málum og vera tilbúnir að taka slaginn. Þarna var plús þeim megin en mínus í innviðagjöldum. En það kemur mér ekkert á óvart hvað er að gerast í þessum málum og hvernig þetta lítur út vítt og breitt um landið. Þar erum við að sjá gríðarleg áhrif á minni þorp og bæi, eins og með hafnarsjóðina og þau áhrif sem þetta hefur síðan á þjónustuna og á viðkomandi svæði. Áhrifin eru mikil, miklu meiri held ég en fólk almennt og þar með hv. þingmenn höfðu áttað sig á að væri að gerast.
Mín hvatning til hv. þingmanns er að nú er hún, hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, í stöðu til að takast á við þetta sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Ég hvet hana til allra góðra verka í þessum málum og til þess að búa til meiri fyrirsjáanleika og eitthvað svona til að vinna með málið á næstu árum með skynsamlegum hætti.