157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:01]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að ræða þetta frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026. Ég ætla nú ekki að fara djúpt inn í þetta frumvarp í 1. umræðu en langar hins vegar að koma hér aðeins upp og taka nokkra punkta sem mér finnst áhugaverðir. Ég held að það sé vert að við í efnahags- og viðskiptanefnd tökum góða umræðu um þá í nefndinni og ég hef svo sem engar áhyggjur af öðru.

Það fyrsta sem maður eiginlega hnýtur um þegar maður horfir á þetta og les yfir frumvarpið eru þessar krónutöluhækkanir sem eru sagðar hér vera, og réttilega, í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins, 3,7%. Ég velti því fyrir mér, eins og hefur komið aðeins fram í umræðunni í dag og ég held að væri áhugavert að taka betri umræðu um það í efnahags- og viðskiptanefnd, hvort við séum að skjóta yfir markið þarna, hvort það væri skynsemi í því að setja þetta við verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem er 2,5%, með það að marki að reyna að slá á verðbólguvæntingar og sýna að stjórnvöld hafa trú á því stóra verkefni sem við öll í þessum þingsal stöndum frammi fyrir og er stærsta verkefni þessa þings, að ná niður vöxtum og verðbólgu. Myndi það tala betur inn í slíkt að vera með þessar krónutöluhækkanir lægri, þ.e. 2,5%? Ég held að það sé eitthvað sem ég hefði viljað taka umræðu um í nefndinni eða fá skýringar á. Ég svo sem átta mig á því í sjálfu sér að hér eru menn bara að nota verðlagsforsendur fjárlaganna en ég er að velta því fyrir mér og velta því upp hér, virðulegur forseti, hvort hitt sé vænlegra.

Það næsta sem mig langar að vekja athygli á eru sóknargjöldin. Ég veit að hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson mun örugglega fara í það á eftir í sinni ræðu en mig langar engu að síður að fara nokkrum orðum um þá lækkun sem hér er lögð til, að sóknargjald fari úr 1.221 kr. á mánuði niður í 1.133 kr. árið 2026. Hafandi verið í fjárlaganefnd í svolítinn tíma þá kannast ég aðeins við umræðuna um sóknargjöldin og ég held að nánast alltaf, alla vega hefur það gerst ansi oft, hafi fjárlaganefnd leiðrétt fjárlög og hækkað meira en gert hefur verið ráð fyrir í frumvarpinu. Hérna er gengið í hina áttina, það er verið að lækka. Ástæðan fyrir því að fjárlaganefnd hefur þurft að grípa inn í undanfarin ár er einfaldlega vegna athugasemda sem hafa komið frá sóknarnefndum víðs vegar um landið sem eru allar á þá bókina lærðar að ef gjaldið fylgi ekki þróun og þær hækkanir gangi ekki eftir þá muni sóknarnefndirnar eiga í erfiðleikum með að sinna sínum hlutverkum. Ég held sömuleiðis og er þeirrar skoðunar að þarna sé annað mál sem við í nefndinni þurfum að skoða gaumgæfilega hvort við séum á réttum stað með. Það er mér til efs en við tökum þessa umræðu betur í nefndinni.

Síðan verður fróðlegt að sjá hvað verður með þetta sérstaka gjald vegna Ríkisútvarpsins sem er lagt til að verði hækkað um 3,7%. Gott og vel. Ég veit að það eru mjög skiptar skoðanir í þinginu um það en ef maður horfir á þetta í stóru myndinni og reynir að horfa á stóra samhengið þá verður mjög áhugavert að sjá hvernig þetta verður, nýja frumvarpið sem boðað hefur verið, ráðherra hefur a.m.k. talað fyrir því að það eigi að fara að takmarka auglýsingar á ríkismiðlinum. Það mun væntanlega þýða lægri tekjur RÚV og verður áhugavert að fá upplýsingar úr þeim ranni um hvað þetta þýðir og hvort krafan verði þá um hærra gjald á móti, umfram þessa 3,7% hækkun sem boðuð er í frumvarpinu.

Hér er sömuleiðis verið að tala um að samnýting skattþrepa verði felld á brott. Það hefur svo mikið verið rætt um þetta í dag og ég er sammála þeim sem hafa talað og ætla ekki að orðlengja það mikið umfram það sem hefur verið sagt hér en ég hef miklar efasemdir um þetta. Ég held að við séum ekki á réttri leið hvað þetta varðar. Það er heilmikill kafli eða töluverður kafli um þetta í greinargerðinni með frumvarpinu þar sem er farið yfir ástæðurnar fyrir þessu, allar góðar og gildar, en mér finnst ýmislegt vanta í þetta. Maður hefur bara heyrt mörg dæmi um það, af því að þessi tillaga er nú ekki ný af nálinni, að þetta geti haft veruleg áhrif á heimilisbókhald fólks sem er að nýta sér samsköttun í dag. Þá er ég ekki að tala um fólk sem er í þessum efstu skattþrepum, alls ekki, heldur t.d. námsmenn og aðra sem þetta á við um. Ég held að við þurfum að skoða þetta.

Þá er það ónýttur persónuafsláttur sem menn gera sér grein fyrir hér, samkvæmt frumvarpinu, að sé í raun og veru tvöföldun af því að frítekjumarki fjármagnstekna var breytt árið 2000, að það sé í raun og veru verið að tvöfalda skattafsláttinn og því er þetta tekið af. Ég held að það sé eitthvað sem við þurfum að fá aðeins betri sundurliðun á í nefndinni, betri umræðu um í nefndinni áður en — ja, hvað á ég að segja, það þarf að fá betri yfirsýn yfir það, ég er alla vega ekki alveg búinn að átta mig á þessum hlut þó að ég sé búinn að lesa þennan kafla nokkrum sinnum. Ég þarf að fá meira kjöt á beinin þarna til að átta mig á hvað þetta þýðir raunverulega.

Mig langar aðeins að tala um kafla 3.12 í greinargerðinni sem er um barnabætur. Ég fagna því að þetta hafi verið framlengt um eitt ár, það verður þá 21 milljarður út árið 2026 en það er sama krónutala og var 2025 þannig að það ber að hafa í huga að það er ekki að fylgja verðlagsþróun upp á 3,7% sem er annars staðar í frumvarpinu og þetta er í raun og veru raunlækkun frá fyrra ári. Ég tel alveg koma til greina að efnahags- og viðskiptanefnd skoði hvort þetta eigi að hækka í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins.

Síðan er eitt og annað í þessu sem væri áhugavert að fara yfir. Skráningargjald í opinbera háskóla er hækkað og maður veltir því fyrir sér, alveg eins og hæstv. ráðherra var spurður að áðan í andsvari, af hverju þetta hafi þá ekki verið hækkað meira. Ég held að við þurfum sömuleiðis í nefndinni að fá aðeins betri upplýsingar um þetta og hvort það liggi einhverjar greiningar á bak við þetta, hvað þetta muni í raun og veru þýða að fara með gjaldið úr 75.000 í 100.000 kr. Eru einhverjar greiningar sem liggja á bak við, mun þetta að einhverju leyti hafa áhrif á inntöku í háskólann, mun þessi 25.000 kr. hækkun draga úr hvata fyrir einstaklinga að fara þar inn?

Síðan er hér tímabundin lækkun á innviðagjaldi og ég, virðulegur forseti, leyfi mér bara að fagna því að það sé fram komið. Þó að sá sem hér stendur hafi samþykkt það á sínum tíma þá er það, held ég, öllum ljóst að það var of langt gengið. Við eigum bara að hafa þor og kjark til að breyta því sem er ekki í lagi og sá sem hér stendur viðurkennir það fúslega að menn fóru þar kannski aðeins of hátt upp. Ég held að við þurfum að skoða það í nefndinni, ég veit að við eigum eftir að fá umsagnir aðila úr þessum ranni, hvort 2.000 kr. fari nægjanlega mikið niður eða hvort við þurfum að tosa okkur eitthvað enn þá neðar vegna þess að þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir þessi samfélög sem hafa verið að fá þessi skemmtiferðaskip inn á sínar hafnir. Þetta skiptir sveitarfélögin verulegu máli og hafnarsjóðina. Við höfum verið að tala um að koma til móts við sveitarfélögin í landinu, styrkja sveitarstjórnarstigið fjárhagslega og ég veit að t.d. Ísafjarðarbær fær alveg gríðarlega háar upphæðir á hverju ári í hafnargjöld af komu skemmtiferðaskipa og það myndi höggva svolítið djúpt skarð í þeirra rekstur ef það kæmi högg á þessar komur. Þannig að ég fagna því að þetta sé hér inni, að menn séu komnir á þann stað og viðurkenni það að menn fóru kannski aðeins of langt og við þurfum að bakka og það er ekkert að því. Það er bara stundum þannig.

Að öðru leyti ætla ég svo sem ekkert að fara yfir þetta frumvarp meira, hlakka bara til að eiga góða umræðu og fara ítarlega yfir það í efnahags- og viðskiptanefnd. Ég held ég láti þetta gott heita um þetta frumvarp hér í 1. umræðu.