157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:16]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir fyrirspurnina. Maður spyr sig hvort það sé búið að snúa hlutunum á hvolf þegar hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, hagfræðiprófessorinn, er farinn að spyrja lögreglumanninn út í hagfræðihugtök og hvað þau þýða. Það sem ég er einfaldlega að benda á, og fleiri, eru skilaboðin sem við erum að senda. Þetta snýst bara um það í mínum huga. Þetta hefur oft verið rætt í minni tíð hér í fjárlaganefnd hver krónutöluhækkunin á að vera, hvort hún eigi að vera samkvæmt viðmiðum Seðlabankans eða eftir einhverjum öðrum viðmiðum. Ég man að við breyttum alla vega í tvígang þessum forsendum til þess einmitt að senda skýrari skilaboð um að menn hefðu trú á því að forsendurnar myndu lagast til hins betra, til þess að reyna að slá á þær væntingar sem eru úti í samfélaginu. Það er í raun og veru þaðan sem ég kem, virðulegur forseti, þegar ég velti því fyrir mér hvort það væru skýr skilaboð út í samfélagið að taka þessar verðlagsbreytingar og setja þær á sama stað og verðbólgumarkmið Seðlabankans til að senda út skýrari skilaboð um að þetta væri alveg klárt, að þangað ætluðu menn að stefna.