breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Forseti. Nú mátti kannski lesa, og hugsanlega er það viðkvæmni mín, úr svari hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar að ég væri með einhverjum hætti að fiska eftir einhverju svari en hér rekur mig ekkert annað áfram en forvitnin. Ég ætla að veita stysta mögulega svar um það af hverju ég er svona forvitinn og ástæðan er sú að almennt séð eru skattahækkanir, sama hvers eðlis þær eru, verðbólgutemprandi. Þess vegna er þetta óvanaleg umræða sem ég átti ekki von á. Áhrif skatta á verðlagsbreytingar eru sem sagt takmarkaðar og ekkert öðruvísi fyrir gjaldahækkanir heldur en fyrir hækkanir sem koma vegna hærri tekna af hlutfallssköttum, þ.e. það er enginn eðlismunur á þessu tvennu. Ef við vildum ræða um einhvers konar skýr skilaboð um aðhald þá þyrfti það að felast í umræðum um annaðhvort niðurskurð gjalda eða hækkun tekna, ekki niðurskurð tekna og hækkun gjalda.