157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:20]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kærlega fyrir síðara andsvar og þessa góðu kennslu í þessum fræðum öllum saman. En þetta er alveg rétt, að sjálfsögðu er það þannig að allar skattahækkanir eru aðhaldssamar og verðbólguletjandi. Hins vegar snýst það sem ég er að reyna að koma orðum að í dag, og miklu fleiri en ég, um það sem hefur tíðkast hér ansi lengi, náttúrlega hvaða skilaboð þingið sendir, hvaða trú við höfum á verkefninu. Ef við höfum ekki trú á því að við munum ná verðbólgunni og vaxtastiginu niður þá er þetta auðvitað bara 3,7% sem við höfum inni. Ef menn hafa trú á því að við séum að fara að ná þessu neðar, sem ég ætla rétt að vona að okkur takist í þessum þingsal, að við náum vöxtunum niður hraðar en því miður spárnar gera ráð fyrir núna, þá held ég, með mína takmörkuðu hagfræðiþekkingu, þó úr Háskóla Íslands að einhverju leyti, að þau skilaboð ættu að vera skýr til almennings.

Það er síðan önnur umræða, af því að hæstv. ráðherra fór að tala um aðhald, og er efni í sérumræðu, var aðeins tekin hér í einmitt í umræðunni um fjárlögin, hvað þessi ágætu fjárlög eru laus við allt slíkt.