breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Kannski fyrst, svo ég taki upp og haldi áfram með þráðinn sem var hér í andsvörum á undan þar sem hæstv. fjármálaráðherra kom í andsvar við hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, þá hefur það auðvitað áhrif áfram þegar ríkisstjórnin rammar inn hækkun krónutölugjalda, eins og hér er lagt til, með 3,7% nafnvirðishækkun. Sveitarfélögin eru núna að undirbúa sínar fjármálaáætlanir, fyrirtæki eiga auðveldara með að réttlæta hækkanir á vörum og þjónustu þegar sést að ríkisstjórnin gengur fram með þeim hætti sem hér er sýnt o.s.frv., af því að verðbólguvæntingarnar eru auðvitað, ég ætla leyfa mér að segja tilfinning. Svona viðbrögð og skynjun er tilfinning fólks þarna úti og fyrirtækja, og fólks sem þeim stýrir, þannig að þetta hefur auðvitað áhrif þótt hagfræðilega sé auðvitað rétt að það sé enginn eðlismunur á hverri krónu sem kemur í kassann á grundvelli hlutfallslegrar krónutöluhækkunar eða breytinga á tiltekinni gerð skatta.
Eftir þennan útúrdúr langar mig að spyrja hv. þingmann út í það sem komið var hér inn á áðan varðandi gjaldtöku skemmtiferðaskipa. Hv. þingmaður kom inn á að hann hefði vissulega samþykkt þessar breytingar á sínum tíma en við honum blasti nú að of bratt hefði verið farið, eins og mig minnir að ég hafi varað við á sínum tíma. En man hv. þingmaður til þess að það hafi verið unnar einhverjar greiningar að ráði á mögulegum áhrifum þessarar hækkunar sem þá var gerð? (Forseti hringir.) Því að mér heyrðist á máli hv. formanns efnahags- og viðskiptanefndar að það hafi einmitt komið á óvart að (Forseti hringir.) þær greiningar lægju ekki fyrir, a.m.k. ekki núna.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmann á ræðutíma, sem nú er 2 mínútur.)