breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er alveg rétt og það er það sem ég var að reyna að koma hér að áðan varðandi þessa 3,7% krónutöluhækkun sem er inni í þessu. Að sjálfsögðu mun þetta hafa keðjuverkandi áhrif út í allt. Ég man eftir því sjálfur, hafandi verið að stýra sveitarfélagi, að þetta var eitt af því sem menn horfðu á varðandi hækkanir hjá sér, þannig að ég er alveg klár á því að ef 2,5% hefði orðið niðurstaðan þá myndum við sjá minni hækkanir í raun og veru út alla keðjuna í framhaldinu. Það er rétt að verðbólguvæntingar eru bara tilfinningar fólks. Það eru engin vísindi þar á bak við og ég er sannfærður um að það hefði slegið á þær að einhverju leyti.
Varðandi gjaldtöku af skemmtiferðaskipum þá er það alveg rétt að sá sem hér stendur samþykkti það á sínum tíma og hv. þm. Bergþór Ólason varaði við því, ef ég man rétt. Ég segi það enn og aftur, eins og ég sagði hér áðan, að við erum bara menn að meiri ef við getum viðurkennt það að okkur mistókst eða að við þurfum að laga eitthvað sem við höfum samþykkt hér inni í þessum sal og ég skal fúslega viðurkenna það.
Varðandi greiningarnar sem hv. þingmaður spyr um þá voru nú greiningar með frumvarpinu en ég held — ég var nú að rifja þetta upp á meðan ég var að hlusta á hv. þingmann — að við þurfum alla vega eitthvað að endurskoða og endurhugsa þessar greiningar. Ef ég man rétt voru þær til staðar en hversu ítarlegar þær voru þori ég ekki að fullyrða en mig rámar í að þær hefðu kannski mátt vera greinarbetri.