breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það á einmitt við um okkur öll hér inni að það er virðingarvert ef við göngumst við því þegar miðið hefur geigað að einhverju marki, eins og ég held að hafi gerst í þessu máli er varðar gjaldtökuna á skemmtiferðaskipin.
Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta hér er að mér hefur þótt vera tilhneiging hjá þessari ríkisstjórn að hafa litlar áhyggjur af greiningarvinnu. Núna fannst mér ég geta lesið það út úr andsvörum og eftir atvikum ræðu hv. formanns efnahags- og viðskiptanefndar, Örnu Láru Jónsdóttur, að menn væru að slumpa á hvað þessi fimmhundruðkall myndi gera sem nú er lagt til að lækka þetta gjald um, úr 2.500 niður í 2.000. Það er auðvitað ótækt í rauninni að það sé verið í þannig tilraunastarfsemi þegar við sjáum að bókanir skipa, sérstaklega á þessar minni og millistóru hafnir, hafa fallið eins og steinn eftir að þessar breytingar urðu.
Ég vil bara nota tækifærið og hvetja hv. þingmann, sem situr í efnahags- og viðskiptanefnd, ef minnið svíkur ekki, til að tryggja í samstarfi við aðra þingmenn að það verði reynt að ígrunda þessa ákvörðun eitthvað betur og eftir atvikum gæti þá niðurstaðan orðið sú að fimmhundruðkallinn sé ekki það sem þarf til að endurlífga þá starfsemi sem þarna var að verða víða bara býsna blómleg. En í öllu falli verður að greina þetta þannig að eitthvert gagn sé af en menn séu ekki að slumpa með eitthvað sem er jafn mikilvægt fyrir samfélögin sem þarna heyra undir og raunin er. Þetta er meira bara hvatning hér í seinna andsvari til að þetta verði skoðað sérstaklega í hv. efnahags- og viðskiptanefnd.