157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:46]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég ætla að koma aðeins inn í þessa umræðu um hinn svokallaða bandorm eða frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026. Eins og fram kom í ræðu hjá hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni þá átti hann frekar von á því að ég færi hér í umræðu um sóknargjöldin. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að þetta er eitt af því sem ég hef nú hingað til, frá því að ég tók sæti hér á þingi, rætt þegar þessi svokallaði bandormur er lagður fram því það virðist nú vera frekar lögmál heldur en hitt að það er yfirleitt gerð tilraun til þess að fara þá leið að sóknargjöldin standi í stað eða þá að þau séu lækkuð og síðan hefur fjárlaganefnd séð að sér í tengslum við sína vinnu. Eins og var gert í fyrra, á síðasta þingi, þá lagði fjárlaganefnd til aukna fjármuni til sóknargjalda.

Ég var að velta því fyrir mér þegar ég sá þessa tölu í þessu frumvarpi sem snýr að lækkun á sóknargjöldum að við áttum hér ljómandi góða umræðu á síðasta þingi eða síðastliðinn vetur, sá sem hér stendur og hæstv. dómsmálaráðherra, sem ég vil kalla kirkjumálaráðherra sömuleiðis, um gildi þjóðkirkjunnar. Nú geri ég mér grein fyrir því, frú forseti, að sóknargjöld eru ekki eingöngu eyrnamerkt þjóðkirkjunni heldur eru sömuleiðis merkt lífsskoðunarfélögum og skráðum trúfélögum. En í því samhengi, af því að ég er að leggja út af þessu sem snýr að sóknargjöldum og þar er samasemmerki við þjóðkirkjuna, þá er það eðlilega á þann veg að þjóðkirkjan er stærsti aðilinn hér á landi sem sinnir þessu starfi, og nú er ég alls ekki að gera lítið úr öðrum trúfélögum eða lífsskoðunarfélögum. Við þurfum að hafa í huga að þjóðkirkjan er að veita ákveðna þjónustu sem ég held að sé óhætt að segja að sé ókeypis fyrir hvern þann sem óskar eftir þeirri þjónustu að stærstu leyti, t.d. varðandi sálgæslu og annað, og kirkjan stendur öllum opin. Þegar maður les yfir það og enn og aftur komum við að því að það eigi að draga úr sóknargjöldum, lækka aðeins — þetta er töluverð lækkun frá þeirri heildarupphæð sem var verið að fjalla um hér í fyrra. Þetta eru 255 milljónir sem hafa komið fram þegar fjárlaganefnd var búin að koma sinni viðbót að, til hækkunar þá, en núna er gert ráð fyrir þessari lækkun. Ég verð að segja að þetta er eins og þegar menn ætla að fara að spara aurinn og tapa krónunni vegna þess að það er þjónusta sem verið er að bjóða af hendi þjóðkirkjunnar, nú sömuleiðis skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga, sem er ókeypis fyrir hinn almenna borgara og gleymum því ekki að kirkjan stendur öllum opin. Hún er einn mesti og mikilvægasti hornsteinn samfélaga vítt og breitt um landið og við verðum að hafa þann kjark að standa með svona félagasamtökum, hvort sem það er þá þjóðkirkjan eða lífsskoðunarfélög eða önnur skráð trúfélög því að þetta er hluti af okkar menningu og þetta er hluti af því að skapa gott samfélag. Því segi ég óhikað, frú forseti, að hér er verið að spara aurinn og kasta krónunni.

Við getum horft til þess að allt sem gert er af hendi þjóðkirkjunnar hér á landi er til þess að bæta samfélagið. Við þekkjum það að allir þeir söfnuðir vítt og breitt um landið þurfa að viðhalda kirkjum, sem eru fjölmargar og margar þessara bygginga eru gríðarleg menningarverðmæti. Þetta eru fámennir söfnuðir og alltaf skal það vera þannig að þetta sé skorið niður, burt séð frá því hvort við séum að horfa til hægri eða vinstri í stjórnmálum, þetta snýst ekki um það í mínum huga, vegna þess að sú ríkisstjórn sem var hér áður, þetta var nákvæmlega sama, við þurftum alltaf að taka þennan slag, þ.e. að það verði að standa með þjóðkirkjunni, trúfélögum og lífsskoðunarfélögum þegar kemur að sóknargjöldum. Þar af leiðandi er þessi umræða ekki ný af nálinni, langt því frá og við verðum, frú forseti, að gera betur þarna.

Ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd til að fara gaumgæfilega ofan í þetta og ég hef fulla trú á því sömuleiðis að fjármála- og efnahagsráðherra verði þeim liðsstyrkur í þessu því að öll hagfræði segir okkur að þarna sé verið að spara aurinn og tapa krónunni. Það liggur alveg fyrir og við þekkjum öll þessa umræðu og ég ætla ekki að orðlengja þetta eða draga þessa umræðu á langinn, frú forseti, hvað það varðar. Mig langaði bara að koma hérna upp og minnast á mikilvægi þess að standa vörð um þjóðkirkjuna og þau ýmsu trúfélög sem hér eru og lífsskoðunarfélög því að allt sem við gerum innan þessara stofnana er mannbætandi og það er það sem við þurfum á að halda í íslensku samfélagi í dag. Það er það sem er farið að skorta verulega á, að við berum virðingu fyrir hvert öðru og það er enginn annar staður, fullyrði ég, sem er betri í því að fræða og uppfræða almenning, og ungu kynslóðina sérstaklega, um það hvernig við eigum að koma fram við hvert annað og hvernig við berum virðingu fyrir hvert öðru. Því er það hvatning hér til hæstv. ríkisstjórnar, efnahags- og viðskiptanefndar og fjárlaganefndar um að gera betur hvað þetta varðar. Við skulum frekar auka þar útgjöld mun meira heldur en er gert ráð fyrir í þessu frumvarpi. Hér er verið að tala um að draga saman og það er eitthvað sem er mér alls ekki að skapi þegar kemur að því. Við verðum að verja sóknargjöldin og þau eigum við að hækka. Það er öllum til góða í þessu samfélagi að hækka sóknargjöldin því að það kemur alltaf til baka til allra.