157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:55]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög þarfa brýningu og margt sem kom fram í hans máli sem hægt er að taka undir. Nú hygg ég, þó að hans reynsla sé mun meiri en mín, að hann geti staðfest að þetta er ekki fyrsta umræðan um þetta málefni sem tekin er í þessum sal. Þetta er endurtekið efni. Mig langar því til að spyrja þingmanninn hvort á langri þingsetu hans og af mun meiri reynslu en minni af störfum hér í húsinu, hafi aldrei hvarflað að honum hvort fyrirkomulagið á þessum ákvörðunum sé hugsanlega óheppilegt, hvort hann hafi velt fyrir sér öðrum leiðum til að ákvarða þessi útgjöld. Það er hafið yfir allan vafa að margt af því sem fram kom í máli hv. þingmanns er rétt um hlutverk trúfélaga, kannski sérstaklega á landsbyggðinni þar sem þjóðkirkjan er þar í aðalhlutverki. Hvernig myndum við koma þessum ákvörðunum þannig fyrir að það þyrfti ekki að taka þessa umræðu á hverju einasta ári? Hefur hv. þingmaður velt þessu fyrir sér og hefur hann hugsanlega einhverja leiðbeiningu í því efni?