157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:59]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það sem ég var nú að fiska eftir er það sem kom fram í ræðu hv. þingmanns að kirkjan, kannski sérstaklega sem stærsta trúfélagið á Íslandi, gegnir fjölbreyttu hlutverki og sumt af því getum við sagt að sé þjónusta við samfélagið í formi sálgæslu og boðið upp á úrræði sem kannski eru ekki í boði víða. Annað er hlutverk hennar í menningunni. Svo nefnir hann hlutverk hennar í að viðhalda hluta menningararfsins sem felst í kirkjubyggingum og öðru slíku. Nú geta menn velt því fyrir sér: Er heppilegt að þessu sé öllu slengt saman? Er hugsanlegt að nálgast framlögin með öðrum hætti þannig að við getum tekið umræðuna öðruvísi en bara svona fram og til baka einhvern veginn um hvað við teljum að eigi að vera framlagið eða með skipulögðum hætti um hvernig við getum styrkt þann hluta þessarar starfsemi sem skiptir okkur mestu máli?