157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[19:01]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir mjög góða spurningu og sömuleiðis vangaveltur. Hvernig getum við gert þetta betur? Ég held að það sé ekki til neitt einfalt svar við því. Við þekkjum að það er búinn að vera alls konar hrærigrautur varðandi það að verja þessar menningarminjar vítt og breitt. Sums staðar hefur það verið þannig að Þjóðminjasafnið hefur tekið yfir sumar af þessum kirkjum. Ég þekki það ágætlega úr minni heimasveit. En það þarf alltaf að fara sömu leið, þetta þarf alltaf að fara í gegnum fjárlögin, hefur verið það hingað til. Ég myndi telja að það væri skynsamlegt að við færum í ákveðna greiningarvinnu varðandi fjárþörf vítt og breitt um landið. Þetta eru gríðarlegar upphæðir sem þarna liggja undir og mikil menningarverðmæti sömuleiðis sem snúa að kirkjunum þannig að ég held að það sé mjög mikilvægt, undir t.d. forystu fjármála- og efnahagsráðherra, að það verði farið í það að greina þörfina fyrir fjárframlög til kirkna og trúfélaga vítt og breitt um landið.