breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir góða spurningu. Ég veit ekki hvað gengur á í þeim ráðuneytum sem um þetta fjalla en ég get svo sem dregið einhverjar ályktanir. Aftur á móti er það þannig að þetta virðist vera ákveðin regla að þetta komi svona fram á hverju einasta ári. Hver ástæðan er veit ég ekki. Ég held hins vegar að það væru þá bara skilaboð þingsins hverju sinni að svara því þá bara fullum hálsi með því að breyta því sem kemur fram í því máli sem við erum að fjalla um núna. Það sýnir þá líka að það er þingið, Alþingi Íslendinga, sem ræður för en ekki framkvæmdarvaldið. Að það þurfi að taka þessa umræðu hér árlega um sóknargjöld, jú, svo sem hefði verið ágætt að eyða tímanum í eitthvað annað en ég held að vísu að öll sú umræða sem á sér stað um þjóðkirkjuna, trúfélög og önnur félög sem njóta góðs af sóknargjöldum, sé mikilvæg en við skulum vona það, hv. þm. Jens Garðar Helgason, að skilaboð okkar, Alþingis Íslendinga, út í samfélagið séu þau að við stöndum með þessum mikilvægu stofnunum, þjóðkirkjunni sérstaklega, og við sýnum það í verki að við hækkum gjöldin og tökum undir með því sem var gert hér á síðasta þingi á vegum fjárlaganefndar þegar framlagið til kirkjunnar, til sóknargjalda var hækkað verulega og ég held að það sé mjög mikilvægt.