breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Jú, ég tek undir með hv. þingmanni og ég kom inn á það í minni ræðu áðan að það sem liggur hér fyrir er að það er verið að spara aurinn og tapa krónunni vegna þess að þjóðkirkjan, önnur trúfélög og lífsskoðunarfélög veita ákveðna þjónustu sem er ókeypis. Ef það yrði þannig að við myndum færa þessa þjónustu alla sem kirkjan og önnur trúfélög og lífsskoðunarfélög veita þá er það alveg klárt mál að það myndi hækka útgjöld ríkisins miklu, miklu meira en við erum að tala um að bæta við í sóknargjöld. Við getum tekið umræðu um sálfræðiþjónustu og annað sem hefur verið bitbein hér í gegnum árin, að það skorti verulega fjármuni til þeirrar þjónustu, og það er klárt mál að þjóðkirkjan, trúfélög og önnur lífsskoðunarfélög veita þjónustuna og hún er ókeypis fyrir viðkomandi aðila þannig að það er klárt mál að það er verið að spara aurinn og tapa krónunni með þessu framferði.