breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aragrúa af miklum og góðum og öflugum spurningum. Ég held að þær hafi alla vega verið fjórar sem ég taldi og ég ætla að reyna að byrja á því sem er aftast á spurningalistanum. Finnst mér það sanngjarnt að svona sé með tvær stofnanir sem eru, eins og við segjum, hornsteinar í samfélaginu? Í mínum huga er þjóðkirkjan hornsteinn samfélagsins. Ríkisútvarpið gegnir ákveðnu hlutverki en ég get ekki borið þessar tvær stofnanir saman á nokkurn hátt. Varðandi fjármögnun Ríkisútvarpsins miðað við þjóðkirkjuna þá er það nú þannig, og það veit hv. þingmaður, að þar er verulegt bil á milli þjóðkirkjunni í óhag. Við gætum alveg horft til þess að velta fyrir okkur mikilvægi þessara stofnana. Í mínum huga er þjóðkirkjan sú stofnun sem ég horfi til hverju sinni sem einnar af mikilvægustu stofnunum samfélagsins. Vissulega gegnir Ríkisútvarpið mikilvægu hlutverki á margan hátt en ég get engan veginn borið þessar tvær stofnanir saman hvað það varðar. En aftur á móti er það þannig, og það kom fram hér í andsvörum hjá mér við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, að ég teldi mjög æskilegt að farið yrði í ákveðna greiningarvinnu vegna þess að það er ekki bara verið að veita mikla og öfluga þjónustu heldur erum við sömuleiðis að horfa á menningarverðmæti vítt og breitt um landið sem felast í þeim kirkjum sem eru þar og við þurfum að standa vörð um. Það er mjög mikilvægt að farið verði í þessa miklu og öflugu greiningarvinnu því að meðan við höfum ekki greiningar (Forseti hringir.) þá er mjög erfitt fyrir okkur að fara af stað með eitthvert verkefni. Við verðum að skoða hver fjárþörfin virkilega er hjá kirkjunni.