breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Vissulega er í mörg horn að líta hjá þjóðkirkjunni. Og við sem höfum starfað hér, sérstaklega við sem höfum verið hér í einhvern tíma, þekkjum harmakveinin sem heyrast reglulega varðandi uppsafnaða viðhaldsþörf sem mig grunar að setji vegakerfið á betri stað ef heildstætt er horft á viðhald stöðu kirkjueigna annars vegar og vegakerfisins hins vegar, sem er auðvitað með hreinum ólíkindum. Ég heyrði ekki — ég held að þetta hafi komið til umræðu í andsvörum hæstv. fjármálaráðherra en hefur hv. þingmaður einhver önnur sjónarmið varðandi hvernig best yrði haldið á þessu miðað við það sem nú er, að þessi hér um bil árlegi slagur sé tekinn um umtalsverða lækkun sóknargjalda þegar við horfum á aðrar stofnanir, ég hef nefnt hér Ríkisútvarpið, njóta svona sjálfvirkra hækkana, bæði á grunni rúmlegra vísitöluverðbóta og síðan þróunar atvinnulífs?