breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég met það svo að heppilegast væri að við færum af stað í ákveðna greiningarvinnu um fjárþörf til þjóðkirkjunnar, til trúfélaga og annarra lífsskoðunarfélaga. Þó að þjóðkirkjan sé hornsteinn, eins og ég horfi á hana, þá eru skiptar skoðanir hvað það varðar sem snúa að öðrum trúfélögum og lífsskoðunarfélögum og allir eru að gegna mjög mikilvægu hlutverki. Það skortir á greiningar. Ég held að það sé mjög mikilvægt að fara í greiningarvinnu varðandi það hvernig eigi að viðhalda öllum þeim kirkjum sem eru vítt og breitt um landið. Vissulega er sómi að því mjög víða hvernig staðið hefur verið að því að viðhalda þeim en mjög víða er það þannig að söfnuðirnir eru það litlir og fámennir að þeir geta engan veginn staðið undir þeirri ábyrgð að viðhalda kirkjunum, þó að ég viti mjög vel að margir þeirra myndu selja sálu sína fyrir það eitt að kirkjan þeirra fengi að standa. En það er fyrst og fremst greiningarvinna, hv. þingmaður, sem við þurfum að fara í.