breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026. Þetta er mál nr. 2 frá ríkisstjórninni. Það er eiginlega leitt að segja það þegar við höfum séð mál nr. 1 sem eru fjárlögin og við ræddum hérna fyrir helgi og erum komin núna í mál nr. 2 að þá er það augljóst að ríkisstjórnin hefur gefist upp fyrir stærsta verkefni sínu, verkefni sem þau voru að stóru leyti kosin til að framkvæma, þ.e. að ná hér niður verðbólgu með undraverðum hætti, jafnvel nota sleggju. Fjárlögin voru þannig að ríkisstjórnin, með nýja stöðugleikareglu í farteskinu, þar sem svigrúm til útgjalda var 2% af rekstrarlegum einingum — þá nýtti ríkisstjórnin það svigrúm nánast að fullu. Ég held að hún hafi skilið eftir 400 millj. kr. Með öðrum orðum: Til að standast stöðugleikaregluna hérna í gegnum þingið þá má ekki auka útgjöldin nema um 400 millj. kr. af hálfu fjárlaganefndar, þá er þak stöðugleikareglunnar farið að bresta.
Í öðru lagi töluðu menn talsvert um það þegar ríkisstjórnin var mynduð að hér væru menn að taka við miklu verra búi og voru reyndar búnir að lýsa því í tvö ár að búið væri mjög slæmt og aukningin í fjárlögum síðasta árs, sem var einhverjir rúmir 60 milljarðar, 63, það væri mjög djarflega farið og hefði verið nær að skila betri afgangi. Fjárlögin á síðasta ári stefndu að því að hér væri líka rúmlega 60 milljarða halli, 62 eða 63 einnig, en núna hefur komið í ljós, eins og hefur komið í ljós reyndar síðastliðin þrjú ár, að tekjuáætlanir fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem eru byggðar á opinberum tölum og þær eru bara því miður ekki betri en þær eru, eru rangar. Í tvö ár voru það yfir 100 milljarðar sem tekjuáætlunin var röng upp á og umræðan hér í þingsal þar af leiðandi á röngum forsendum allan tímann. Núna kemur í ljós að tekjuáætlunin er röng upp á einhverja 80 milljarða og tekjuaukningin upp á 80–91 milljarð. Ég hef heyrt báðar þessar tölur og þori ekki alveg að fullyrða hvor er réttari. Ríkisstjórnin eykur útgjöld sín á milli ára um 126 milljarða, ekki 63 sem þeir gagnrýndu, heldur tvöfaldar þá upphæð og segir síðan stolt: Við erum að lækka hallann á ríkissjóði úr þessum 60 milljörðum plús niður í 15.
Nú spyr ég hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, eins og ég spurði hæstv. forsætisráðherra hér í ræðu á fimmtudag: Hefði ekki verið betra, hefði það ekki verið sleggjan ef menn hefðu hér í stað þess að skila 15 milljarða halla sleppt því að eyða 126 milljörðum og eytt bara 110, ekki farið alla leið og skilað milljarði plús í hagnað? Það hefði verið óvænt sleggja. Það er reyndar, held ég, verkefni þingsins og fjárlaganefndar að reyna að finna út úr því. Þetta er önnur ástæðan fyrir því að ég segi að ríkisstjórnin hafi gefist upp á verkefninu. Þarna fannst mér vera dauðafæri, og finnst reyndar enn, að ná fram hallalausum fjárlögum strax árið 2026 með því að fara ekki í 126 milljarða aukningu á útgjöldum heldur láta sér bara duga 110.
Hin ástæðan er síðan frumvarpið sem við erum með í dag. Ég er búinn að taka þessa umræðu við hæstv. forsætisráðherra og reyndar lítillega við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrr í þessari umræðu. Þá segja menn þar á bæ, á ríkisstjórnarbænum, að það sé mikilvægt að rýra ekki skattstofna til langs tíma með því að fylgja eftir verðbólguspá Hagstofunnar og hækka krónutölur og allt sem því nemur um 3,7%. Með öðrum orðum: Ríkisstjórnin trúir því heldur ekki að hún nái hallalausum fjárlögum, held ég, árið eftir, þótt það séu bara 15 milljarðar samkvæmt þessum fjárlögum, því ef þau hefðu haft fulla trú á því að þau næðu hallalausum fjárlögum þá hefði verið skynsamlegt, til að slá á væntingar — og ég veit að við erum ekki sammála um það, hvorki hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra né hæstv. forsætisráðherra, að þetta hafi áhrif á væntingar markaðarins og væntingar fólks þegar ríkið gengur á undan og hækkar samkvæmt verðbólguspá, því þá gera það allir aðrir. Ef ríkið hefði hins vegar gengið á undan með góðu fordæmi og sagt að það ætlaði bara að hækka um 2,5% vegna þess að það ætli að ná hallalausum fjárlögum og að það hvetji alla aðra til þess að hætta að hækka umfram 2,5% þá væri það sterk vísbending til markaðarins, til almennings, til fyrirtækjanna, til aðila vinnumarkaðarins um að ríkisstjórnin hefði fulla trú á því að hún næði fram hallalausum fjárlögum.
Þannig að hér eru komin tvö verkefni eða tvö leiðarstef, annars vegar í fjárlagafrumvarpinu og hins vegar í þessu frumvarpi um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga, sem er svona tekjubandormur þar sem ríkisstjórnin sendir að mínu mati og okkar í Framsókn röng skilaboð, sendir út þau skilaboð að hún treysti sér ekki til að ná niður hallanum á ríkissjóði. Mér finnst þegar staðreyndin er sú, samkvæmt áætlunum vissulega, að það stefni í að árið 2025 verði ekki skilað með 62, 63, 64 milljarða halla eins og fjárlögin sögðu til um heldur 19 milljarða halla, að það hefði verið vísbending til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að hér væri dauðafæri, að í 1.600 milljarða útgjöldum væri dauðafæri til að reyna að ná fram hallalausum fjárlögum einu ári fyrr heldur en nokkur hefur talað um, strax á árinu 2026, en ríkisstjórnin gerir það ekki. Hún reynir meira að segja enn þá að halda því fram og slá því ryki í augun á fólki, síðast hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra í dag í samtali við hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson í óundirbúnum fyrirspurnum þar sem hann var að tala um hallann sem væri á fjárlögum, sem er alveg rétt, var á fjárlögum, en var ekki að tala um það sem nýjustu áætlanir miða við, tekjuaukningu upp á 80 eða 91 milljarð sem hefur skilað sér í gegnum árið vegna þess að tekjur voru vanáætlaðar eins og hefur verið gert síðustu þrjú árin hið minnsta áður, sem er, held ég, umhugsunarefni fyrir okkur.
Ég deili örugglega áhyggjum fjármála- og efnahagsráðherra í því að þó svo að það sé ágætistaktík að vanáætla tekjur þegar maður leggur fram fjárhagsáætlanir, til að það komi svona auka en vera eins nákvæmur í útgjöldum og hægt er til að fá ekki eitthvað í bakið — þá er þetta of langt gengið. Þetta er ekki 10 milljarða skekkja, þetta er ekki 20, þetta er stærðargráðan 80, 90, 100, 110 milljarðar. Þetta veldur því að umræðan í samfélaginu er röng. Þetta veldur því að viðbrögð markaðarins við fjárlögum hvers tíma eru röng. Í þessari sömu áætlun núna þar sem bent er á að tekjur yfirstandandi árs verði umtalsvert meiri er, held ég, talað um að tekjur 2026 verði um 27 milljörðum meiri en í fjármálaáætlun, ef ég man rétt.
Nú ætla ég bara að vera svo djarfur að segja að ef hagkerfið á Íslandi heldur áfram að vera eins þróttmikið og það hefur verið þá verða þessir 27 milljarðar talsvert meiri. Hversu mikið meiri þori ég ekki að segja frekar en ég þorði að segja sem fjármála- og efnahagsráðherra síðasta haust, þegar ég spurði sérfræðingana sem voru að meta tekjurnar hvort það væri nú alveg öruggt að við fengjum það ekki í bakið, eða eigum við segja allt í einu óvæntan meðbyr upp á einhverja 20, 50, 80 milljarða, og var sannfærður um að svo væri ekki því að nú væru breyttir tímar. Greinilega ekki. Með öðrum orðum: Ríkisstjórnin notfærði sér ekki þetta dauðafæri að mínu mati og okkar í Framsókn til að reyna að koma fram með sleggjuna. Það hefði verið sleggja að mínu mati líka að slá á kröfur ríkissjóðs um að á einu ári væri hægt að slá af krónutöluhækkununum og hafa þær bara 2,5% en ekki 3,7% til að senda út þau skilaboð.
Ég er hins vegar alveg sammála hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og forsætisráðherra þegar þau segja að ef við gerum þetta viðvarandi og alltaf þá gefi skattstofninn eftir og við þurfum þá að grípa til annarra ráðstafana til að standa undir þjónustunni. En ef við hefðum fulla trú á því að með því að gera þetta einu sinni, að ná fram hallalausum fjárlögum og ná niður verðbólgu og vöxtum, þá er ávinningurinn umtalsvert meiri en þeir 2,3 milljarðar sem þetta á að skila, 4,3 en 2,3 ef kílómetragjaldið verður að veruleika, ef ég man rétt, umtalsvert meira í lækkuðum vöxtum fyrir ríkissjóð en ekki síður fyrir fyrirtækin og allan almenning í landinu.
Svo er eitt annað efni sem mig langar aðeins að ræða. Það er að úr því að svona er komið, að ríkisstjórnin sé búin að gefast upp á því verkefni að slá niður verðbólguna og sætta sig við það að verðbólga og vextir á árinu 2025 og langt inn á árið 2026 verði mjög háir, þá hefði mér fundist rétt að ríkisstjórnin velti því fyrir sér hvernig hún gæti komið til móts við lágtekjuhópa samfélagsins. Í þessu frumvarpi er alla vega ekkert um það nema eitt atriði. Það er það að sérstök barnabótahækkun sem átti að renna út í lok þess árs er framlengd um eitt ár. Með öðrum orðum: Eina viðbragð núverandi ríkisstjórnar er að framlengja það sem síðasta ríkisstjórn lagði til til að koma til móts við unga fólkið okkar sem er auðvitað mest þjakað af háum vöxtum vegna húsnæðislána eða þá vegna leigugreiðslna, ef fólk er á leigumarkaði, og þeirrar staðreyndar að við getum alltaf gert betur og höfum sannarlega bætt í barnabótakerfið á síðustu árum með því að fara í heildarendurskoðun á því. Ég held að stuðningur hafi verið aukinn um 2 milljarða og nam alls 21 milljarði á árinu 2025 og það er að mér sýndist sama talan og ríkisstjórnin segist ætla að nota á árinu 2026 og segir í áhrifamati að það muni koma sérstaklega barnafólki og lágtekjufólki til góða. Þá er auðvitað því að svara að þá hefðu menn þurft að hækka þetta í það minnsta sem nemur þessum 3,7% ef þeir ætluðu að láta það vera jafngilt og jafnvel ganga lengra ef þeir vildu koma til móts við þennan hóp.
Vaxtabótakerfið er áfram á sömu vegferð og ég er ekki ósammála því. Ég held að það sé búið að ganga sinn veg. Ég held að vaxtabótakerfið hafi verið bastarður í íslensku bótakerfi eins og margir hafa bent á, OECD, Alþjóðabankinn og fleiri, það hafi svolítið skemmt skattkerfið og kannski fyrst og fremst verið til að gefa fjármálafyrirtækjunum tækifæri til þess að viðhalda háum vöxtum en ekki komið fólkinu til góða. Við höfum farið aðrar leiðir í húsnæðisstuðningi, til að mynda með fyrstu fasteign þar sem menn geta nýtt séreignarsparnaðinn sinn í tíu ár, bæði til að safna en líka til að greiða niður lán eða inn á höfuðstólinn, sem ég held að sé frábært stuðningskerfi fyrir ungt fólk. Við vorum líka, af því að vextir voru mjög háir og verðbólga há fyrir nokkrum árum, með sérstaka 6 milljarða vaxtabótaeingreiðslu sem margir í verkalýðshreyfingunni, sem sumir sitja núna á þingi, voru ánægðir með og kröfðust þess að fá — ekki neitt um þetta hér í þessu frumvarpi. Húsnæðisbætur til að greiða niður síhækkandi húsnæðislán — ekkert um það heldur, þannig að mér finnst ríkisstjórnin svolítið skila auðu í því að koma til móts við tekjulága og ekki síst ungt barnafólk.
Þegar við horfum síðan til einnar af ástæðum þess að við erum að glíma við stöðuga verðbólgu, þ.e. að það er skortur á því að hér sé byggt nóg af íbúðarhúsnæði, þá voru hvorki í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar né í fjárlögum neinar vísbendingar um að ríkisstjórnin hefði í hyggju að gera eitthvað róttækt til að hafa áhrif á verðbólguna. (Forseti hringir.) Þess vegna segi ég hér í lokin að mér sýnist á þessum tveimur fyrstu frumvörpum að ríkisstjórnin sé því miður búin að gefast upp á því verkefni að ná hratt niður verðbólgu og vöxtum.