157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

ebreyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[19:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir heita ræðu og get glatt hann með því að ég hef á engan hátt gefist upp á því verkefni að ná niður vöxtum og verðbólgu, þvert á móti. Ég er ekki stórfenglegur aðdáandi svona fram og til baka „já, jú, víst, nei, þú gerðir það ekki“ rökræðna og ætla þess vegna að halda mig við staðreyndir málsins og benda á að þeir 123 milljarðar sem hv. þingmaður bendir á eru auðvitað að langsamlega stærstum hluta launa- og verðlagsmismunur milli fjárlaga, þetta veit hv. þingmaður mætavel, sem og vaxtagjöld. Svo er auðvitað fjárfesting sem ég hygg að hv. þingmaður sé ríkisstjórninni sammála um að hafi verið nauðsynleg, m.a. vegabætur sem var jú þrátt fyrir allt langvarandi viðfangsefni hv. þingmanns þegar hann var innviðaráðherra.

En mig langar til að spyrja sérstaklega út í eitt ákveðið atriði sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt, og hv. þingmaður hóf ræðu sína á, og það eru þeir nokkuð augljósu vankantar sem virðast vera á áætlanagerð hins opinbera, og hann vék að að hefði verið vandamál í sinni ráðherratíð og sinni tíð í ríkisstjórn, hvort hann hafi velt fyrir sér hvaða leiðir væru færar til að bæta þessa áætlanagerð þannig að sú ákvarðanataka sem þingið stendur frammi fyrir á hverjum tíma sé ekki deila um tölur og magatilfinningu heldur um staðreyndir.