breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni kærlega fyrir mjög hreinskilið svar. Það er mjög mikilvægt, þrátt fyrir að við séum ekki sammála um alla hluti og sitjum hvor sínum megin í þessum sal akkúrat í augnablikinu, að við horfum á það mikilvæga langtímaverkefni sem við hljótum öll að vera sammála um að reyna að leysa með sem bestum hætti, að taka ákvarðanir á grundvelli réttra gagna. Ég vil þess vegna nota þetta tækifæri til þess að lýsa yfir ánægju minni með hreinskilni hv. þingmanns um þetta vandamál og einlægum vilja mínum til að vinna með þinginu að því að gera hér bragarbót. Það er dýrara fyrir íslenskt samfélag en stærri samfélög að gagnasöfnun og utanumhald sé dreift út um allt af því að við erum fá og það að vera með starfsfólk, einstaklinga, dreift um allt kerfið safnandi saman gögnum er fyrir okkur miklum mun dýrara en það væri fyrir tíu eða hundrað sinnum stærra samfélag. Þess vegna er hér, eins og hv. þingmaður kom inn á, um ekkert sérstaklega spennandi en ákaflega mikilvægt verkefni að ræða. Ég ítreka því að samstarf um að gera á þessu bragarbót er gríðarlega mikilvægt svo að við hv. þingmaður getum átt upplýstara og gagnlegra samtal þegar ég legg fram hallalausu fjárlögin á næsta ári.