157. löggjafarþing — 6. fundur, 16. sept. 2025.
mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Flokks fólksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, þannig að Ásthildur Lóa Þórsdóttir taki sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Ragnars Þórs Ingólfssonar.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.