breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir sína ræðu og fyrir að vekja athygli á atriði sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson tók upp hér í umræðunni í gær varðandi sóknargjöld. Ég hjó eftir því í ræðu hv. þingmanns að hún talaði þar um vinnu sem hefði átt sér stað í ráðherratíð hennar varðandi endurskoðun sóknargjalda. Ég heyri á hv. þingmanni að hún er því sammála sem fram kom í umræðunni í gær, að nauðsynlegt sé að horfa til annarra lausna en þeirra sem hafa verið nýttar hingað til varðandi fjármögnun þessarar starfsemi. Ég hjó eftir að hún lýsti aðgerðaáætlun í nokkrum liðum varðandi hvernig mætti taka á þessum málaflokki.
Mig langar til að spyrja hana hliðstæðra spurninga og ég spurði hv. þm. Þórarinn Inga Pétursson í gær í sambærilegri umræðu. Nú er ljóst að hlutfallslegt vægi trúarsafnaða, þá sérstaklega þjóðkirkjunnar á landsbyggðinni, er töluvert frábrugðið sambærilegri stöðu í höfuðborginni og mikilvægi hennar annað. Telur hv. þingmaður að ástæða sé til þess að taka það með í reikninginn í þeirri endurskoðun sem ég heyrði að hún ýjaði að?