breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra hér fyrir spurningu til mín og ég vil einnig fá að þakka ráðherranum fyrir það, að mér heyrist, að sýna því málefni sem ég lagði mikla áherslu á í ræðu minni áhuga. Það er vel. Ég vil líka fá að vera heiðarleg í þessari umræðu því að hér talar fyrrverandi sóknarnefndarformaður Hveragerðissóknar og ég þekki það af eigin raun að sóknargjöld hafa verið skorin niður og eru líklega meira en helmingi lægri en þau ættu að vera. Þetta hefur haft gríðarleg áhrif á rekstur allra sókna hringinn í kringum landið. Vægi kirkjunnar er auðvitað mikið í dreifðum byggðum og ég þekki það í því samfélagi sem ég sjálf bý í þar sem kirkjan verður miðpunktur samfélagsins og íbúar eiga þar mjög margar gleði- en einnig sorgarstundir sameiginlegar. Það liggur í hlutarins eðli að þar sem við erum með sérstaklega gamlar kirkjur sem þarfnast verndar og mikils viðhalds og þar sem eru, ég leyfi mér að segja, nokkrar hræður í sókninni, sóknin telur kannski 50 eða 100 manns, þá getur hún ekki staðið undir því verkefni að viðhalda friðaðri kirkju. Það bara gengur ekki upp. Það er ekki hægt að setja upp einhvern samanburð við sóknir á höfuðborgarsvæðinu þar sem eru þúsundir. Þess vegna hvet ég ráðherrann til að skoða það með dómsmálaráðherra að stofnaður verði einhvers konar viðhaldssjóður sérstaklega fyrir friðaðar kirkjur til að viðhalda þessum mikilvæga menningararfi okkar sem þessi mannvirki eru sannarlega og við horfum með nýjum hætti (Forseti hringir.) að lausnum á því hvernig við getum aðstoðað sóknirnar því að viljinn er ríkur og mikill til að viðhalda þessum mannvirkjum.