breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir spurningu til mín. Svo við ljúkum þessari umræðu sömuleiðis um sóknargjöldin þá vil ég fá að hvetja ráðherra til að grípa aðeins utan um þennan málaflokk. Mér finnst ekki boðlegt að hér á hverju einasta ári — ég held að það sé bara einhver í ráðuneyti hæstv. ráðherra sem brennur einhvern veginn fyrir því að lækka sóknargjöld því á hverju einasta ári, þetta er orðin svo þreytt tugga, kemur alltaf í bandormi fram lækkun á sóknargjöldum og alltaf koma hér hópar kirkjunnar fólks til að tala fyrir í rauninni því sama ár eftir ár. Mér finnst það ekki boðlegt, ekki bara gagnvart verkefninu heldur gagnvart því fólki, þannig að ég hvet ráðherrann aftur til þess að stíga þar inn í og við finnum varanlegt fyrirkomulag á því hvernig við ætlum að standa að þessu því ég held að við séum öll sammála um það að starfsemi kirkjunnar er mikilvæg.
Hæstv. ráðherra spyr hér um kostnað, bæði vegna vegakerfis og hvernig við ætlum að standa straum af þeim kostnaði í gegnum skatta og gjöld í kringum bifreiðar okkar. Það er alveg hárrétt hjá ráðherranum að það var vitaskuld á þingmálaskrá, og það veit ráðherrann, á síðasta kjörtímabili að gera hér breytingar og ég var í þeim hópi sem varaði við því. Það er alveg rétt að hér er hluti bifreiðaflotans hreinorkubílar eða bílar sem aka um á hreinu rafmagni. Þeir geta ekki nýtt vegakerfi okkar án þess að taka þátt í uppbyggingu þess og kostnaði þess og við því hefur verið brugðist. En ég tel að þau gjöld sem nú er verið að leggja á séu of mikil og hér sé of bratt farið.