157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

skipulagslög.

28. mál
[16:16]
Horfa

Flm. (Hildur Sverrisdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir andsvarið. Stutta svarið er að það er sanngirnismál að breyta frá því fyrirkomulagi að eitt sveitarfélag geti haft neitunarvald varðandi skipulag í öðru sveitarfélagi. Það er það sem er óeðlilegt. Ef maður notar bara „konkret“ dæmi, afsakið að ég sletti hér, alvörudæmi, þá hefur bæjarstjórnin í Kópavogi til að mynda lengi kallað eftir því að geta aukið við land sitt til þess að fjölga íbúðum í sínu sveitarfélagi en eitthvert annað sveitarfélag, minna sveitarfélag, ekki nálægt Kópavogi, gæti til að mynda sett því skorður.

Það er sú ósanngirni í raun sem verið er að bregðast við og þá er verið að skrifa inn að það sé ekki bara hið eina sveitarfélag sem hefur um það að segja hvað gerist innan þeirra lóðamarka ef svo má segja til að reyna að halda virðingu gagnvart því að þetta er svæðisskipulag í heild. Það sé eðlilegt að hvert og eitt sveitarfélag ráði ekki eingöngu um sig og sín mörk en að þá sé verið að skrifa inn að það þurfi meiri hluta. Þú sért því ekki einráður á þínu svæði en það sé eðlilegt að þú getir notið stuðnings meiri hluta þess sem eru tengdir málinu ef svo má segja en að það sé ekki eingöngu eitt sveitarfélag ef svo má segja sem getur sagt nei og sett stopp á allt svæðið.