skipulagslög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir þetta svar og það skýrir þetta svolítið betur líka. Í seinna andsvari langar mig aðeins að velta því upp að tekið er fram í lögunum og einmitt í þessu frumvarpi að ekki eigi að breyta því sem snýr að sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins. En nú erum við farin að sjá á nokkrum stöðum, og kannski er svæði eins og Reykjanes ágætisdæmi um það, að sveitarfélögin eru farin að vera með byggðirnar ansi þétt — sveitarfélagið Vogar og Reykjanesbær bara sem dæmi og fleiri svæði á Reykjanesinu þar sem sveitarfélögin eru farin að byggja ansi þétt saman — hvort hv. þingmaður telji að hugsanlega mætti bæta hér inn einhverri heimild eða jafnvel skyldu þar sem slíkar aðstæður koma upp, að það skuli gera svæðisskipulag fyrir slík svæði.