skipulagslög.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum sem felur það í sér að samþykki aukins meiri hluta sveitarstjórna nægi til að gera breytingar á svæðisskipulagi í stað þess að krafist sé einróma samþykkis allra hlutaðeigandi sveitarfélaga. Þetta kann að virðast tæknilegt atriði en í raun snertir það eitt stærsta samfélagsmál okkar tíma, húsnæðismálin og getu sveitarfélaga til að bregðast við þörfum íbúanna. Þessu máli, sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir reifaði hér og er fyrsti flutningsmaður að, standa allir hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins að og það var í raun lagt fram upphaflega af fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.
Í dag er það svo að hvert sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu hefur neitunarvald um allar breytingar á svæðisskipulagi. Það þýðir í raun að eitt sveitarfélag á svæðinu getur haldið aftur af öllum hinum, jafnvel þegar ágreiningurinn er lítill eða byggist á pólitískum hagsmunum fremur en raunverulegum skipulagsrökum, dæmum og aðstæðum okkar sem lifum í raunheimum en getum fest í gamaldags kreddum og óraunhæfri framtíðarsýn þröngsýnna stjórnmálamanna, til að mynda hér í Reykjavíkurborg. Það er augljóslega ósanngjarnt að samgöngumál, húsnæðisuppbygging eða atvinnuþróun á öllu þessu svæði geti staðið og fallið með því hvort eitt sveitarfélag segir já eða nei, að stjórnmálamenn sem keyra á pólitískum kreddum og gjaldþrota hugmyndafræði geti haft svo mikil áhrif.
Virðulegi forseti. Í dag, árið 2025, er staðan sú að mannfjöldi hefur vaxið langt umfram spár og vaxtamörk höfuðborgarsvæðisins byggja því á úreltum forsendum sem eiga ekki lengur við. Þegar íbúðum í byggingu hefur jafnvel fækkað milli ára í Reykjavík á sama tíma og þörfin eykst þá er ljóst að núverandi kerfi stendur í vegi fyrir lausnum. Við þekkjum það að sveitarfélögin í kringum Reykjavík hafa viljað stækka vaxtamörkin og bjóða fram fleiri lóðir en yfirvöld, meiri hlutinn í Reykjavíkurborg, hefur lagst gegn því. Lóðaskortur er ein meginorsök húsnæðisvanda. Ýmis sveitarfélög vilja leysa þennan vanda en kerfið sem er við lýði gerir þeim ókleift. Þetta frumvarp er lagt fram sem lausn til að breyta þessu vandamáli.
Það er hvorki réttlátt né lýðræðislegt að eitt svæði geti þróað framþróun fyrir alla hina á svæðinu. Með frumvarpinu er ekki verið að svipta sveitarfélögin áhrifum sínum, þau sitja áfram við borðið og þurfa að mynda aukinn meiri hluta, en með þessu máli, með þessari tillögu er verið að tryggja að sameiginlegir hagsmunir svæðisins ráðið för, ekki neitunarvald eins aðila, ekki pólitískar kreddur og fordómar eins fram yfir gríðarlega hagsmuni sem þarna eru undir, ekki bara fyrir svæðið heldur fyrir landsmenn alla, því að við þekkjum auðvitað ruðningsáhrifin af húsnæðisstefnu hér í Reykjavík. Þetta er ekki bara spurning um stjórnsýslu heldur um sanngirni, að sveitarfélög sem vilja gjarnan byggja upp, sem vilja bjóða fram lóðir og húsnæði fái tækifæri til þess.
Meiri hlutinn í Reykjavíkurborg hefur lagt mikla áherslu á þéttingu byggðar. Hófleg þétting getur haft sína kosti en hún er ekki eina leiðin og getur reynst, eins og við vitum, dýrari og erfiðari í framkvæmd. Við sjáum það svart á hvítu hvaða áhrif þessi stefna meiri hlutans í Reykjavíkurborg hefur haft. Ég gæti rakið það í löngu máli en mér verður hugsað til allra þeirra í kringum mig — sem ég geri ráð fyrir að þeir hv. þingmenn sem sitja hér í þessum sal og þeir sem fylgjast með þessari umræðu þekki — allra þeirra sem hafa flutt, ekki til nágrannasveitarfélaganna hérna á höfuðborgarsvæðinu heldur enn þá lengra. Við vitum að sveitarfélögin í kringum borgina vilja byggja á nýjum svæðum, svæðum sem þó eru nær mörgum atvinnusvæðum en t.d. svæði á Suðurlandi þar sem hefur farið fram kröftug uppbygging til að bregðast við eftirspurn, með tilheyrandi ferðatíma. Niðurstaðan er sú að öllu er snúið á hvolf og tilgangurinn helgar alls ekki meðalið. En stjórnmálamenn í meiri hlutanum í Reykjavík hafa bundið bæði fyrir augun og eyrun. Það er óeðlilegt að svæðin á höfuðborgarsvæðinu sitji föst í kerfi þar sem samþykki allra er skilyrði þegar raunveruleg lausn felst í því að leyfa auknum meiri hluta að ráða. Hver getur andmælt því að þetta sé sanngirnismál?
Virðulegi forseti. Við stöndum frammi fyrir húsnæðisvanda sem hefur bein áhrif á lífskjör fólks, á ungt fólk sem vill eignast sína fyrstu íbúð, á fjölskyldur sem þurfa stærra húsnæði, á atvinnulíf og á samfélagsþróun. Við getum ekki leyft úreltum reglum að vera dragbítur á lausnir. Þetta frumvarp er skynsamlegt, sanngjarnt og tímabært. Það tryggir að sveitarfélög geti í reynd unnið saman að sameiginlegum hagsmunum íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Ég hvet okkur öll hér til að skoða raunverulegar lausnir til að bregðast við vandanum sem okkur er svo tíðrætt um og auðvitað til að taka þetta frumvarp okkar Sjálfstæðismanna, sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir hefur hér forgöngu um, til raunverulegrar skoðunar. Þetta mál gæti verið mikilvægt skref í átt að lausn húsnæðisvandans og til marks um að við viljum tryggja framtíðarsýn sem byggir á samvinnu en ekki neitunarvaldi og þröngri pólitískri sýn örfárra kjörinna fulltrúa á bara einu svæðanna sem hér er undir.