skipulagslög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar ræðu. Ég get upplýst um það að ég starfaði, áður en ég tók við hér sem þingmaður á Alþingi Íslendinga, sem formaður svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins þannig að ég þykist þekkja nokkuð til málaflokksins. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvaða breytingar á svæðisskipulaginu eða stækkun vaxtarmarka þess það eru sem Reykjavíkurborg hefur hafnað, hvort hún geti talið þær upp hér í pontu Alþingis.
Í öðru lagi þá vil ég rifja það upp fyrir þingheim að breytingum á vaxtarmörkum höfuðborgarsvæðisins hefur sannarlega verið hafnað einu sinni. Það var þegar Garðabær vildi stækka vaxtarmörkin við Rjúpnahlíð en Kópavogur neitaði því. Það er reyndar sami flokkur við völd í báðum þessum sveitarfélögum og það er Sjálfstæðisflokkurinn.
Mig langaði kannski að spyrja vegna þess að afleiðingin af því ferli sem við höfum í dag var sú að á vettvangi bæði skipulagsnefndar og annars staðar fóru viðkomandi sveitarfélög í eitthvert samtal og eru kannski að reyna að finna einhverja lausn sem báðir geta sæst við. En ef hugmyndafræði hv. þingmanns og flutningsmanna tillögunnar hefði orðið þá hefði niðurstaðan einfaldlega orðið sú að það hefði verið byggt athafnasvæði í Garðabæ sem myndi kallast á við efri byggðir Kópavogs án þess að Kópavogur fengi neitt við því sagt, vegna þess að meiri hluti hinna sveitarfélaganna var ágætlega peppaður fyrir þessari hugmynd.
Þannig að mig langar að spyrja í fyrsta lagi, svo að ég ítreki: Hvaða breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins hefur Reykjavíkurborg hafnað? Og í öðru lagi: Er það skoðun hv. þingmanns í þessu tilfelli að þetta athafnasvæði við Rjúpnahlíð hefði átt að rísa, sama hvaða Kópavogsbúum fyndist? Vegna þess að það hefði verið hægt að mynda aukinn meiri hluta fyrir því innan svæðisskipulagsnefndar.