skipulagslög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna, sem er svona heimspekileg um hvort sé lýðræðislegra. Mér finnst það bara vera mjög góð spurning. Á endanum finnst mér það samt lýðræðislegast að sveitarfélögin geti knúið á um niðurstöðu um þessi mál sjálf án aðkomu Alþingis. Er það ekki lýðræðislegast? Hv. þingmaður nefnir að menn séu að ræða saman og finna lausn, sem er frábært. Það er einmitt ferlið sem hefði kannski átt að eiga sér stað fyrr í ferlinu, áður en menn fara að rekast á veggi og fá neitun og fara í gegnum þetta kerfi sem Alþingi hefur búið til fyrir þessa aðila. Þeir finni það bara hjá sjálfum sér og við getum bara treyst sveitarfélögunum til að finna bestu lausnina án þess að þáttur Alþingis og þær ákvarðanir sem eru teknar hér séu einhvern veginn yfirvofandi; ef þau geri það ekki þá sé það mögulega lögbrot. Ég treysti sveitarfélögunum mjög vel til að taka sínar ákvarðanir sjálf. Og hv. þingmaður spyr: Hversu mikið á að ganga á skipulagsvald sveitarfélaga? Mér finnst að það bara eigi ekki að gera það neitt. Við treystum sveitarfélögunum vel og þess vegna erum við með þessi tvö stjórnsýslustig og því meira sjálfræði fyrir sveitarfélögin, því betra.