skipulagslög.
Virðulegur forseti. Er það ekki rétt hjá mér að þetta svæðisskipulag kemur til hvað 2005, er það ekki rétt hjá mér? (Gripið fram í: Nei, 2010. Eða 2014.) — Já, 2010 eða 2014. Ég var einn af nýbúum Kópavogs í Lindahverfinu. Það voru risnar tvær blokkir í Lindahverfinu árið 1997. Þá flutti ég í Kópavoginn og bjó þar í sjö ár og það var ótrúleg uppbygging sem átti sér stað í Kópavogi þegar Lindahverfi reis og svo Salahverfið og svo Hvörfin o.s.frv. Það var ótrúlegt að sjá þá uppbyggingu sem varð í Kópavogi og víðar á höfuðborgarsvæðinu en ég fylgdist sérstaklega með þessu í Kópavogi. Maður veltir fyrir sér: Hvernig hefði þetta verið ef þetta hefði allt verið sameiginlegt á sínum tíma? Þarna var bara Kópavogur að byggja sig upp. Mig langaði bara að skjóta þessu inn í umræðuna.
Nú spyr hv. þingmaður hvort skylda eigi önnur svæði í þetta. Það skyldaði enginn Austfirðinga til að fara í þessa vinnu á Austurlandi. Hún var sjálfsprottin af því að á Austurlandi sáu menn að það var gott að hafa ákveðna sameiginlega sýn. Af því að ég er maður frelsis vil ég sem minnst leggja þær byrðar á sveitarfélögin að fara að skylda þau í eitt eða neitt. Reykjanesið var nefnt hér áðan sem er nú að vaxa mikið saman og ég gæti alveg trúað því að í því umhverfi muni skapast sá jarðvegur að menn muni ákveða að fara í ákveðið samstarf í skipulagsmálum og í svæðisskipulagi. En hvort það verður með þeim hætti að Vogar geti bara stoppað uppbyggingu í Reykjanesbæ o.s.frv., sem eitt sveitarfélag — ég efast um að menn fari í þá vegferð.