157. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2025.

skipulagslög.

28. mál
[17:01]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil taka það fram að þó að það skipulag sem nú er í gildi sé orðið, að ég held, 11 eða 12 ára gamalt þá var svæðisskipulag uppi á höfuðborgarsvæðinu töluvert fyrir þann tíma. Þau skipulagsverkefni voru reyndar sjálfsprottin, þau voru ekki lögþvinguð eins og hefur verið síðasta rúma áratug eða svo. Sú uppbygging sem hv. þingmaður varð vitni að, og ég líka af því að ég bjó í Seljahverfinu á sínum tíma, átti sér stað innan ramma þess svæðisskipulags.

Ég vil aðeins mótmæla því að hér hafa menn komið upp og talað eins og samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar svæðisskipulag hafi verið einhver samfelld hrakfallasaga. Það er auðvitað alls ekki. Ef við horfum t.d. á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins — og raunar var það skipulag sem er í gangi núna samþykkt fyrir u.þ.b. 12 árum af öllum sveitarfélögum og með nokkuð breiðri sátt alls staðar þar inni. Mér finnst svolítið skrýtið — af því að ég myndi segja að skipulag höfuðborgarsvæðisins hafi bara gengið vel og þetta frjálsa samstarf sveitarfélaga hafi gengið vel — að fólk stígi hér inn út af einhverri svona hugmyndafræði og vilji einhvern veginn breyta alveg um uppbygginguna og breyta alveg um þá dínamík að um frjálst samstarf sveitarfélaga er að ræða. Mér finnst að það hefði þá líka átt að hafa í för með sér að hægt væri að samþykkja nýtt svæðisskipulag, alveg nýtt svæðisskipulag, fyrir eitthvert svæði, fyrir fimm sveitarfélög af sjö, án þess að meiri hluti væri fyrir því innan eins sveitarfélags. Gæti bara svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins verið samþykkt án þess að Garðabær styddi það? Mér fyndist það mjög skrýtið fyrirkomulag að við gætum verið með svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, bara nýtt sem gilti til 12 ára, sem eitt svæði væri bara alfarið á móti. Þetta eru þau sjónarmið sem ég vildi halda uppi í samskiptum mínum hér uppi í pontu við hv. þingmann.