Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna hennar. Mig langaði eiginlega bara að spyrja út í eitt atriði. Í kafla 2, um tilefni og nauðsyn lagasetningar, kemur fram, með leyfi forseta:
„Sú breyting sem nú er lögð til felur í sér að í stað þess að takmarka upplýsingaöflun við 1. og 2. tölul. 3. gr. verði veitt heimild til að afla upplýsinga um tekjur maka og foreldra lánþega sem sjóðurinn kann að þurfa að kalla eftir ef nauðsyn krefur, hvort sem er vegna lána samkvæmt lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna eða gildandi laga um Menntasjóð.“
Ég átta mig ekki á í hvaða tilvikum það væri réttlætanlegt að kalla eftir upplýsingum um tekjur foreldra lánþega, ég tala nú ekki um ef um er að ræða einstaklinga sem eru orðnir 18 ára. Nú kann að vera að það sé eitthvað sem gæti réttlætt þetta sem ég átta mig ekki alveg á. En þess vegna spyr ég hvort hæstv. ráðherra geti útskýrt hver tilgangurinn er með þessu.