Menntasjóður námsmanna.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil þá bara benda aftur á og vona að það verði skoðað sérstaklega í nefndinni, að í frumvarpinu er talað um foreldra líka. Ég skil ekki alveg hvað tekjur foreldra hafa með þetta að gera, fyrir utan að það er sérstakt þegar fólk er orðið fjárráða. Við erum væntanlega með Menntasjóð námsmanna til að jafna tækifæri fólks og ef þetta er farið að snúast á einhvern hátt um það hversu miklar tekjur foreldrar hafa eða hafa ekki, þá er þetta undarlegt. Ég vona að það séu bara mistök að hafa foreldrana þarna inni en alla vega verði skoðað hvort það sé einhver tilgangur með því.