Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Hér fjöllum við um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna. Ég þakka umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir að flytja þetta mál hér vel í fjarveru menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Mig langar í þessari ræðu, þar sem þetta frumvarp er nú endurflutt, að fjalla aðeins um málsmeðferðina sem það fékk í allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta þingi og þau atriði sem komu þar upp. Við fengum á fund nefndarinnar gesti, sérfræðinga úr ráðuneytinu en líka frá Landssamtökum íslenskra stúdenta og Sambandi íslenskra námsmanna erlendis. Það bárust í heildina sex umsagnir. Til viðbótar við þá aðila sem ég nefndi voru þeir einnig m.a. frá Öryrkjabandalaginu og BHM.
Frumvarpið fjallar auðvitað um nokkur atriði og í fyrsta lagi að skilyrði til að lánþegar hljóti námsstyrk verði rýmkað, vaxtaviðmiðum verði breytt og heimild í lögum til að greiða af einu láni í einu verði rýmkuð og síðan auðvitað, eins og fram hefur komið aðeins í máli hæstv. ráðherra Jóhanns Páls Jóhannssonar hér áðan, önnur atriði sem snúa að framkvæmd laganna.
Almennt voru umsagnaraðilar og gestir sem komu fyrir nefndina mjög jákvæðir, töldu að um mikilvæga breytingu væri að ræða og lögðu á það áherslu að þetta yrði samþykkt. Fulltrúar námsmanna voru þar á einu máli en á sama tíma vöktu þeir líka athygli nefndarinnar á atriðum sem ætti að hafa í huga við þá heildarendurskoðun sem núna er í gangi á lögunum. Ráðuneytið hefur auðvitað aðgang að þessum gögnum öllum á vef Alþingis. M.a. bentu þeir á tilefni hvort endurskoða eigi undanþágu námslána frá áhrifum af gjaldþrotaskiptum. Síðan lögðu fulltrúar stúdenta gríðarlega áherslu á að þessari heildarendurskoðun yrði flýtt. Þar var t.d. umræða um fæðingarorlof og annað slíkt.
Í ljósi þeirra ábendinga sem hafa komið fram frá gildistöku laga um Menntasjóð námsmanna er mikilvægt að málið nái fram að ganga nú þegar í því skyni að bæta kjör námsmanna og stuðla enn betur að því markmiði laganna að tryggja jöfn tækifæri til náms án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti. Jafnframt er mikilvægt að unnið verði að endurskoðun laganna á grundvelli ábendinga sem fram hafa komið.
Megináhersla frumvarpsins er þá sú breyting á styrkjakerfi námslána sem lögð er til í frumvarpinu að í stað 30% niðurfellingar á höfuðstóli námslána í lok náms gætu lánþegar sem uppfylla kröfur um námsframvindu hlotið 20% niðurfellingu við lok hverrar námsannar og 10% niðurfellingu við námslok ef þeir ljúka námi innan tilskilinna tímamarka. Þetta lögðu fulltrúar stúdenta mikla áherslu á þar sem upp getur komið sú staða að ungt fólk taki sér hlé frá námi, t.d. vegna fæðingarorlofs og/eða veikinda eða annars slíks. Þar af leiðandi er mikið sanngirnismál að hægt sé að fella niður 20% að lokinni hverri námsönn. Það er auðveldara fyrir fólk að sjá fyrir sér að ná að klára eina önn og ná þá þessari niðurfellingu í staðinn fyrir að horfa á allt sitt háskólanám mörg ár fram í tímann.
Þá er líka mikilvæg þessi fyrirhugaða breyting á vaxtaviðmiðum og að byggja á þriggja ára meðaltali vaxta í stað eins mánaðar. Með þessu fyrirkomulagi myndu breytingar á vaxtakerfi og stýrivaxtaákvarðanir Seðlabankans á hverjum tíma minnka sveiflurnar. Það er nauðsynlegt að bregðast við þessum óhagstæðu vaxtakjörum sem hafa leitt til þess að greiðslubyrði námslána hefur þyngst verulega. Sífellt færri nemendur hafa nýtt sér stuðning sjóðsins og hlutfall þeirra sem hafa hlotið námsstyrk hefur verið mun lægra en gert var ráð fyrir þegar lögin tóku gildi. Breyting varðandi vaxtaviðmið námslána sem eykur fyrirsjáanleika við afborgun námslána og breyting sem hefur í för með sér að rýmkuð yrði heimild lánþega til að greiða fleiri af en einni — sem hafa hingað til þurft að greiða af fleiri en einni lánstegund samtímis til að einbeita sér að því að geta greitt af einu er þar af leiðandi mikilvægt skref til þess að stuðla að því að nemendur fái frekari styrk til náms.
Allsherjar- og menntamálanefnd vann mjög vel að þessu máli á síðasta þingi og við fengum til okkar gesti og fórum vel yfir umsagnirnar og frumvarpið var afgreitt úr nefndinni með nefndaráliti. Auðvitað voru að einhverju leyti skiptar skoðanir um hversu langt ætti að ganga, hvort það ætti að ganga jafnvel enn lengra í þessu eða að einhverju leyti skemur, en öll nefndin horfði til þess að unnið er að þessari heildarendurskoðun og skilaboðin frá nefndinni voru nokkuð skýr í nefndarálitinu varðandi þau atriði sem ráðuneytið ætti að hafa í huga þegar kemur að því máli.
Við fögnum því að þetta mál sé komið á dagskrá og verður vonandi eftir 1. umræðu vísað til nefndarinnar til frekari vinnslu þar sem við munum taka málið og reyna að vinna það hratt. Það er búið að gera okkur grein fyrir því að það skiptir máli að við náum að afgreiða þetta mál sem fyrst og innan þessa árs til að gildistíminn virki þannig að hægt sé að beita þessu máli og þessum breytingum á lögunum strax á næsta ári.