Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir framsögu frumvarpsins og fyrir að koma með það hingað inn í þingsal. Ég held að segjum það aldrei nógu oft að mennt er máttur og menntamál eru grunnur lífskjara úti um allt og þar á meðal hér á Íslandi.
Þetta frumvarp á að tryggja námsfólki raunhæfan aðgang að bestu fjárfestingu hvers manns, þ.e. menntun. Hér hefur ýmislegt komið fram í fyrri ræðum og verður einhver endurtekning hjá mér en kannski eru aðrir vinklar. Með frumvarpinu er lagt til að námsmenn geti áunnið sér 20% námsstyrk í lok hverrar annar og 10% við námslok og í greinargerð segir að markmiðið sé að búinn sé til aukinn sveigjanleiki í kerfið og að líkurnar aukist á að lánþegi hljóti styrk. Þarna hefði ég sjálfur viljað orða það þannig að í stað þess að segja að lánþegi hljóti styrk að lánþegi klári nám og þá fylgi styrkur í kjölfarið. Ég hefði viljað snúa þessu við, þetta sé ekki einhvers konar sókn í styrki beint heldur að klára nám og í kjölfarið hljóti menn styrk. En þetta eru kannski svona hugræn hrif sem mér finnst að þyrfti að laga og við ræðum það örugglega í nefndinni þar sem ég sit með hv. formanni nefndarinnar, Víði Reynissyni.
Þetta er vissulega skref í átt til norskrar fyrirmyndar sem margir hafa kallað eftir. Ég spyr mig samt með þessi 10% og 20% hvort hlutföllin hefðu mátt snúast við, 10% á önn og 20% við námslok til að hvetja nemendur til að klára námið, að menn taki ekki kannski stóran hluta af styrknum áður en menn klára og hvatinn sé minni til að klára. Ég átta mig ekki alveg á rökunum fyrir því að hafa þetta svona en ekki eins og ég er að tala um í þessari ræðu. Ég hefði haldið svona almennt séð að það væri best fyrir mannlega hegðun að gulrótin við endamarkið væri sætust og stærst en ekki á miðri leið. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta byggi á einhverjum gögnum, þessi breyting eða snúningur á prósentum við námsstyrki og hvort þetta sé einhver vinna sem hafi farið fram í þessu, sem getur vel verið, ég átta mig ekki alveg á því sjálfur.
Í 4. og 5. gr. frumvarpsins er lagt til að vextir námslánanna taki mið af þriggja ára vegnu meðaltali ávöxtunarkröfu fimm ára ríkisskuldabréfa. Þetta held ég að sé gott og hjálpi til við að koma með meiri fyrirsjáanleika fyrir lánþega. Það er kannski eðlilegt að menn geti séð greiðslubyrði sína betur og hún breytist ekki ótt og títt eftir vaxtabreytingum. Hins vegar getur þessi breyting haft mismunandi áhrif eftir lánaþörf og þriggja ára meðaltal getur, eins og kom fram í umsögnum í samráðsgáttinni, leitt til hærri vaxta en styttri viðmiða í allt að 60% tilfella. Þetta er eitthvað sem ég er sjálfur ekki alveg sérfræðingur í en þetta kom inn í samráðsgáttinni þannig að þetta er kannski ákveðinn fyrirsjáanleiki sem kallar þá á örlítið hærri heildargreiðslur, kannski að einhverju leyti eins og verðtryggð lán sem kalla fram meiri heildargreiðslur en fyrirsjáanleikinn er mun meiri. Þetta er kannski eitthvað sem við ættum að hafa í huga.
Í 6. gr. er lagt til að upphaf endurgreiðslna lengist úr 12 í 18 mánuði. Þetta er, held ég, mjög góð breyting fyrir nemendur því að þessi tími, þegar nemendur eru í sínu háskólanámi, er oft fjárfrekur tími, menn oft komnir með fjölskyldur og þá er þetta ágætis breyting og hefði mögulega mátt bara lengja þetta enn frekar þannig að nemar hefðu haft enn meira svigrúm á meðan þeir eru að koma undir sig fótunum við lok náms og eftir nám.
Frumvarpið rýmkar heimildir Menntasjóðs til að afla upplýsinga um tekjur maka og svo benti hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir á foreldra líka, sem er að ákveðnu leyti sérstakt, að hvort sem menn séu fluttir úr foreldrahúsum eða ekki geti tekjur foreldra haft áhrif á þessa möguleika manna til þess að sækja sér lán eða styrki. Þetta er eitthvað sem við munum örugglega skoða í nefndinni, hver hugsunin á bak við þetta sé. En ég vil líka leggja áherslu á það að þessi rýmkun stangist ekki á við persónuverndarlög því það skiptir miklu máli að allar persónuupplýsingar séu vel geymdar og haldið vel utan um þær.
Það vekur sérstaklega athygli ákveðið bráðabirgðaákvæði um að þeir sem tóku há lán fái heimild til að færa þau yfir í ný vaxtaviðmið. Þetta er vissulega réttlætismál en heimildin gildir aðeins til ársins 2027 og er ekki afturvirk. Ég spyr því hvort sú tímasetning sé nægjanleg. Margir fyrrverandi nemar kunna kannski að vilja nýta sér þessa leið seinna.
Í greinargerð er áætlað að 90% lánþega muni nýta sér námsstyrkina eftir breytingarnar samanborið við 70% í dag. Áætlaður kostnaður ríkissjóðs er tæpar 600 milljónir á ári, verðtryggt. Þetta á að rúmast innan gildandi fjárheimilda, sem er jákvætt, en það þarf að fylgjast vel með þróuninni því margt smátt gerir eitt stórt.
Virðulegur forseti. Frumvarpið felur í sér einhver skref til að bæta námslánakerfið eða Menntasjóðskerfið, auka sveigjanleika og tryggja jafnt aðgengi að menntun. Heildarendurskoðun þessa kerfis er líklega þörf því að bútasaumur dugar skammt og ég bara hvet hæstv. ráðherra þessa málaflokks til að huga að því.