Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Þetta er auðvitað athyglisverð vangavelta. Ég held að það skipti mestu máli að fyrirkomulagið sem við lögfestum og festum hér í sessi sé hvetjandi, sama hvernig orðalagið nákvæmlega er. En þetta er vissulega eitthvað sem væri hugsanlega hægt að skoða, hnykkja á í nefndaráliti. Eins og við þekkjum þá er lagatexti oft svolítið þurr og svo er það lagatæknilegt viðfangsefni að gæta þess að lögin séu eins skýr og mögulegt er. Ef það svarar spurningu hv. þingmanns þá tel ég a.m.k. að það fyrirkomulag sem er verið að festa í sessi með þessu frumvarpi til laga, og er í samræmi við norska fyrirkomulagið, feli í sér mjög gott jafnvægi á milli þess annars vegar að tryggja afkomu námsmanna og lánþega og hins vegar að hvetja fólk til dáða í sínu námi.